Þrír leikmenn kallaðir inn í landsliðshópinn

Sævar Atli Magnússon hefur verið kallaður inn í hópinn.

Sævar Atli Magnússon hefur verið kallaður inn í hópinn. mbl.is/Birta Margrét

Þrír leikmenn hafa verið kallaðir inn í íslenska karlalandsliðshópinn í fótbolta fyrir lokaleikinn gegn Lúxemborg í fjórða riðli C-deildar Þjóðadeildar Evrópu á mánudaginn. 

Brynjar Ingi Bjarnason, leikmaður Sönderjyske í Danmörku, Hjörtur Hermannsson, leikmaður Gautaborgar í Svíþjóð, og Sævar Atli Magnússon koma inn í hópinn. 

Kristall Máni Ingason og Stefán Teitur Þórðarson meiddust í stórsigri Íslands á Búlgaríu, 5:0, ytra í gærkvöldi og þá tekur Hörður Björgvin Magnússon út leikbann gegn Lúxemborg. 

Ísland fær Lúxemborg í heimsókn á Laugardalsvöll og vinnur riðilinn með sigri í leiknum. Þá gæti jafntefli einnig dugað íslenska liðinu. 

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅