„Fataherbergið mitt lýsir mér best af öllum rýmum í húsinu“
Hrefna Daníelsdóttir er fagurkeri fram í fingurgóma og litagleðin einkennir jafnt heimilið sem fatastílinn.
Þegar stigið er inn á heimili Hrefnu Daníelsdóttur á Akranesi sést strax að þar býr fagurkeri fram í fingurgóma. Hún elskar að hafa skrautlegt og skemmtilegt í kringum sig og litagleðin einkennir jafnt heimilið sem fatastílinn.
Aðspurð hvaðan áhuginn á hönnun sé sprottinn segir Hrefna:
„Ég byrjaði að blogga árið 2012, sælla minninga, og hélt í byrjun úti bloggi þar sem ég birti myndir af klæðaburði mínum og fleiru tengdu tísku. Með tímanum þróaðist bloggið út í meira tengt heimilinu og þá fór ég að velta fyrir mér heimi hönnunar og áhuginn kviknaði mjög fljótt. Ég ætlaði mér alltaf að fara í nám tengt innanhússhönnun en kom mér aldrei í það, kannski einn daginn, hver veit. Í dag hef ég allavega brennandi áhuga á innanhússhönnun og get auðveldlega gleymt mér í pælingum því tengdum.“
Hrefna er fædd og uppalin á Akranesi og hefur búið þar alla tíð enda segir hún hvergi betra að vera. Hún er gift Páli Gísla Jónssyni og saman eiga þau þrjár dætur, Viktoríu, Söru og Tinnu, ásamt loðbarninu Dimmu. Hún er einnig nýbökuð amma og á tveggja mánaða „ömmumola“, eins og hún orðar það sjálf. Hrefna er lærður fasteignasali og starfaði við það í nokkur ár en vinnur í dag hjá Íslandsbanka.
Stofan er aðalsamverustaður fjölskyldunnar, hvort sem kúrt er yfir góðri mynd eða spjallað um allt og ekkert. Ljósmynd/Aðsend
Hrefna lýsir heimilisstílnum sem litríkum og hlýlegum og segir hann hafa tekið miklum breytingum í gegnum árin.
„Litir og mynstur poppa upp hvert rými og gera heimilið mega kósí, eða það finnst mér allavega enda líður mér hvergi betur en heima. Stíllinn hefur þróast ansi mikið og farið í gegnum alls konar breytingar á þessum 22 árum sem við Palli höfum búið saman. Við höfum búið á fjórum stöðum og farið í gegnum ólík tímabil með liti og húsgögn. Hvert heimili hefur því haft sinn stíl. Það er mjög gaman að fletta í gegnum gamlar myndir og sjá hversu ólík öll heimilin okkar hafa verið.“
Að sögn Hrefnu kemur innblásturinn víða að. „Ég sæki mikinn innblástur á samfélagsmiðlunum TikTok og Instagram, í tímaritum, í umhverfinu og hjá fólkinu í kringum mig.“
Hrefna segir fallegustu heimilin vera þau sem endurspegla fólkið sem þar býr.
„Persónuleg heimili eru fallegust, þá er ég ekki að tala um að þú þurfir að hafa alla veggi veggfóðraða af myndum af fólkinu þínu en stíllinn þinn verður að vera sýnilegur. Heimilið er ómálaður strigi þegar þú færð það í hendurnar og það er þitt að skapa það og gera að þínu, listaverkið þitt. Það er mikilvægt að vera óhrædd við pensilinn og leyfa sköpunargleðinni að njóta sín.“
Hrefna segir stofuna vera í sérstöku uppáhaldi. „Það er af því að hún er aðalsamverustaður fjölskyldunnar. Við kúrum saman í sófanum yfir góðri mynd, sitjum og spjöllum um allt og ekkert og höfum gaman saman við alls konar tilefni. Þar bjóðum við líka gestum að sitja með okkur og eigum með þeim gæðastund.“
„Ég fékk alveg frjálsar hendur þar inni“
Það er alltaf gaman að kíkja inn á heimili annarra og sjá hvað leynist þar. Heimilið segir jú ýmislegt um fólkið sem þar býr. Blaðamaður spyr því Hrefnu: Ef ég kæmi í heimsókn til þín, hvað á heimilinu myndi segja mér mest um hver þú ert?
„Fataherbergið mitt lýsir mér best af öllum rýmum í húsinu, enda er það rými þar sem litir, glamúr og gleði blasa við í hverju horni. Ég fékk alveg frjálsar hendur þar inni og elska útkomuna. Herbergið afhjúpar heldur betur fata-, skó- og töskusýki mína. Mörgum finnst þetta kannski fullmikið af hinu góða en ég eyði ekki pening í vín, sígarettur eða annað slíkt svo þetta er ekkert meira galið en það! Eins og Carrie Bradshaw sagði svo skemmtilega: „I like my money right where I can see it – hanging in my closet.““
Er einhver hlutur á heimilinu sem þú myndir aldrei vilja skilja við?
„Dauðir hlutir eru mér ekki mikilvægir. Það eina inni á mínu heimili sem skiptir mig máli og ég vil ekki skilja við er fólkið mitt og hundurinn. Ég hef aldrei bundist hlutum tilfinningaböndum og ef eitthvað brotnar eða glatast þá skiptir það mig ekki máli.“
Hrefna heldur sig ekki við ákveðið tímabil í stíl og hefur gaman af að blanda saman gömlu og nýju. „Ég elska að blanda saman gömlu og nýju því mér finnst rýmin verða meira sjarmerandi og við Palli höfum alla tíð haft slíka blöndu á heimilinu. Gömlum hlutum fylgir oft saga fyrri eigenda sem gefur þeim sérstakt gildi og setur svip á rýmið. Þeir eru líka oft einstakir og finnast ekki á öðru hverju heimili eins og margir nýir hlutir.“
„Ég kaupi bara þá vöru sem heillar“
Hrefnu finnst gaman að gramsa eftir hlutum en á sér enga sérstaka uppáhaldsverslun. Hún hefur þó gaman af að fara á nytjamarkaði, enda fátt skemmtilegra en að detta þar niður á eitthvað sem heillar.
„Ég elska að fara á antíkmarkaðinn hérna á Akranesi og hef gert ansi mörg góð kaup þar. Gott dæmi eru fallegu sófaborðin okkar. Ég birti mynd af þeim á Instagram og fékk nokkru síðar skilaboð frá stelpu sem hafði farið með þau á nytjamarkaðinn Búkollu hér á Akranesi. Þaðan höfðu þau ratað á antíkmarkaðinn. Hún hafði fengið þau úr dánarbúi en aldrei fundið þeim stað hjá sér og fannst gaman að sjá þau nýtast svona vel í stofunni okkar. Annars á ég engar uppáhaldsverslanir, ég kaupi bara þá vöru sem heillar, óháð því hvar hún fæst.“
Hrefna heldur sig ekki við ákveðið tímabil þegar kemur að stíl og hefur gaman af að blanda saman gömlu og nýju. „Ég elska að blanda saman gömlu og nýju því mér finnst rýmin verða meira sjarmerandi og við Palli höfum alla tíð haft slíka blöndu á heimilinu. Gömlum hlutum fylgir oft saga fyrri eigenda sem gefur þeim sérstakt gildi og setur svip á rýmið. Þeir eru líka oft einstakir og finnast ekki á öðru hverju heimili eins og margir nýir hlutir.“
Litir, glamúr og gleði blasa við í fataherberginu, þar sem Hrefna fékk alveg frjálsar hendur. Ljósmynd/Aðsend
Leggurðu miklar pælingar í að velja húsgögn, ljós, liti og smáhluti eða ertu meira hvatvís?
„Ég, eða við, Palli fær nú líka eitthvað um hlutina að segja,“ segir Hrefna, hlær og heldur áfram:
„Við veljum frekar gaumgæfilega það sem kemur hingað inn, enda höfum við ákveðnar skoðanir á því sem við viljum. Mér finnst mikilvægt að velja liti sem taka vel utan um mann, rýmið verður að vera hlýlegt. Húsgögnin eru valin út frá notagildi en smáhlutirnir, motturnar og ljósin mega vera áberandi og litrík. Mér finnst þau eiga að poppa upp rýmin og setja punktinn yfir i-ið.“
Hrefna og Páll Gísli eiga þrjár dætur, Viktoríu, Söru og Tinnu, og hundinn Dimmu. Nýlega bættist svo lítill ömmumoli í fjölskylduna. Ljósmynd/Aðsend
Að lokum varð blaðamaður að forvitnast um hvað Hrefnu þætti hafa tekist sérstaklega vel á heimilinu og hvort eitthvað væri sem hún myndi gera öðruvísi í dag.
„Við erum heilt yfir mjög ánægð með heimilið okkar. Húsið er byggt árið 1956 og ég elska öll fallegu smáatriðin á neðri hæðinni, skrautlista, loftlista og falleg mynstur á veggjum. Þau fegra svo sannarlega rýmin. Ef eitthvað mætti vera öðruvísi þá eru tvö svefnherbergi á efri hæðinni undir súð. Það hefur ákveðinn sjarma en flækir líka oft uppröðunina og rýmin nýtast aðeins verr,“ segir Hrefna og bætir við að þau hjónin séu alltaf í einhverjum breytingapælingum:
„Við erum í alls konar pælingum hérna heima, enda gamalt hús og kominn tími á margt. Breytingar á baðherberginu á efri hæðinni og teppi á stigann eru efst á listanum okkar, sem er ansi langur.“
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/0/1690050.jpg)




