Fékk átta viðbragðsaðila í flasið eftir klósettferð í Tókýó
Samfélagsmiðlar íslensks stjórnmálafólks eru alltaf undir smásjá og því sem þar fer fram gert skil með reglubundnum og skemmtilegum hætti í Spursmálum. Yfirferðina má í heild sinni sjá í meðfylgjandi myndskeiði eða í rituðu máli hér að neðan.
Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, þarf að læra betur á japönsk klósett. Samsett mynd/Unsplash/Jan Antonin Kolar/mbl.is/Hulda Margrét
Neyðarlegi kallinn keypti neyðarkallinn
Eyjó peyjó innviðaráðherra keypti full size neyðarkall af nýliða úr flugbjörgunarsveitinni sem fékk að sjálfsögðu mynd af sér með neyðarlega kallinum, Eyjólfi sem sagt, og nýjasta fínasta neyðarkallinum sem kannski verður eftirlíking af Eyjó á næsta ári! Hver veit. Ég er alla vega búin að henda þeirri prýðisgóðu hugmynd út í kosmósið.
Tojaratrúnó sem reyndist bara vera fundur í Breiðinni
Togga Gunn og María Rut töluðu saman á tojarann á Skipaskaga í vikunni.. Eða bíddu what, nei þetta er ekki klósett. Guð, ég hélt þetta hefði verið klósett. Haha, úps. En það hefði samt ekkert komið mér á óvart að þær tvær hefðu farið á tojaratrúnó..
Klósettöryggið í Tókýó
Diljá Mist er stödd í Tókýó á vegum utanríkismálanefndar og lenti heldur betur í vandró mómenti þegar hún skaust á klósettið til að gera þarfir sínar svo þegar því var lokið ætlaði hún að sturta niður en ýtti þess í stað á neyðarhnapp og fékk hvorki meira né minna en átta viðbragðsaðila í flasið. Það skortir ekki öryggið!
Náði ekki metinu
Gummari segir líf og gjör ríkja innan Samfylkingarinnar þessa dagana og ég trúi honum. Alltaf gaman þar sem hann er. En á dögunum hljóp hann sitt tvöhundraðasta maraþon eða eitthvað, maður er bara hættur að telja, hann er alltaf hlaupandi einhver maraþon eins og geðsjúklingur. En því miður náði hann ekki metinu sínu í þetta sinn. Gengur bara betur næst.
Baráttumál Ingu og Sönnu
Vitið þið af hverju Inga Sæland álpaðist í pólitík? Til að útrýma fátækt á meðal íslenskra barna. Já og hananú. En bíddu var það ekki aðaltopic-ið hennar Sönnu Magdalenu. Jesús, þarf Inga að eigna sér allt aumt. Dramaaa..
Halla Hrund í Harvard
Halla Hrund heimsótti gamlar heimaslóðir við Harvard háskóla á dögunum og hafði sérstaklega gaman af. Þar sat hún fundi sem fjölluðu um nýjan samning á milli Bandaríkjanna, Grænlands og Danmerkur. Ég meina myndi það drepa þessa Ameríkana að opna eins og einn McDonald’s stað á Grænlandi eða?
Löglegur við laugina hjá Laxness
Elsku besti löghlýðni og samviskusami sjálfukóngurinn okkar virti að sjálfsögðu þetta skilti þar sem fólk er vinsamlegast beðið um að stinga sér ekki til sunds í laugina hjá Laxness í Gljúfrasteini sem er sko vöktuð með öryggismydavélum. Pawel tekur bara löglega sundspretti annað en kollegar hans í Norðausturkjördæmi. Dulevur drágur.
Ameríski draumurinn
Ása Berglind var líka stödd í Bandaríkjunum í vikunni í boði bandaríska utanríkisráðuneytisins þar sem norðurslóðir voru í aðalhlutverki. Vúhú! It’s a party in the U.S.A! Sjá hvað hún brosir blítt við bandaríska fánann.
40 frímerki - tjékk
Obbfríður dómsmáladrolla er ekkert að tvínóna við hlutina. Heldur betur ekki! Nú hefur hún sett frímerki á rassgatið á 40 útlenskum glæpamönnum og hent þeim beinustu leið úr landi. Queen D. Sko D fyrir dómsmálaráðherra, þó þetta afrek hafi ekki enn gert Miðflokksmönnum til geðs. Þeir jafna sig.
Ósviknar Keflavíkurnætur
Ísdrottningin Guðrún Hafsteins skellti sér suður með sjó en það var eitthvað massa sjallastuð í Keflavík á dögunum og gjörsamlega fullt út úr dyrum. Enda ekkert rómantískara en Keflavíkurnætur eins og okkar ástkæri Rúnar Júll söng forðum daga. Blessuð sé minning hans.
„Ég er sko vinur þinn“
Það er sko ekki hægt að segja annað en að Sigurjón Þórðarson sé vinur í raun. Hann er næstum því jafn hjartagóður og hvetjandi og Chat GPT. Í vikunni bakkaði hann upp Ingu sína upp benti almenningi á þau fjölmörgu framfaraspor sem hún hefur tekið í ráðherratíð sinni. Það ættu auðvitað allir að eiga einn svona Sigurjón Þórðarsson.
Framsóknarpartí mældist á jarðskjálftamælum
Partípinnarnir í Framsóknarflokknum voru í miklu fjöri um síðustu helgi og ætlaði þakið bara að rifna af húsinu sökum allrar gleðinnar. Váff! Þetta partí hefur sennilega mælst á jarðskjálftamælum. Er þessi kvikugangur á Reykjanesskaga kannski frömmurunum að kenna?
Kristrún og dísæta franska makkarónukakan
Talandi um frammara í stuði. Það var aldeilis uppi á varaformanni flokksins typpið í vikunni þegar Landsvirkjunarmálið svokallaða var til umræðu á Alþingi. Forsætisráðherra svaraði fyrirspurnum um málið og gerði sér lítið fyrir og eiginlega bara jarðaði Hörð Arnarson lifandi eða aldurssmánaði hann alla vega allrækilega. Er ekki orðið tímabært að virka Olweusareineltisáætlunina á Alþingi Íslendinga líka, ekki bara í grunnskólum landsins?
Hörður aldurssmánaður. En Kristrún komst líka í fréttirnar erlendis því henni þykja greinilega dísætar makkarkónukökur greinilega svolítið góðar og kjassaði og kjamsaði á einni slíkri á dögunum. Jömmí in mæ tömmí! Hvað haldið þið að hafi gerst næst?
A very UN-frosty welcome: Emmanuel Macron leans in to greet Iceland's PM Kristrun Frostadottir at meeting of European leaders https://t.co/5wRneBLJmw
— Daily Mail (@DailyMail) November 12, 2026
Smelltu á spilarann hér að neðan til að nálgast nýjasta þátt Spursmála í heild sinni:
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
