„30 metrar á sekúndu er ekkert fyrir okkur“
Hlynur Sveinsson veðuráhugamaður segir Norðfirðinga öllu vana þegar kemur að óveðri og að meira þurfi til en 30 m/s svo að þeir láti á sig fá.
Hlynur heldur úti Facebook-síðunni Veðurstofa Norðfjarðar sem allmargir fylgjast með.
Hann segir stöðuna vera góða fyrir austan. „Úrkoman er búin og það er smá snjóþekja yfir öllu. Nú bíðum við bara eftir vindinum,“ segir hann í samtali við mbl.is.
Beðið eftir vindinum
Von er á hvassviðri fyrir austan á næstu klukkustundunum. „Vindurinn er búinn að vera meira norðnorðvestan. Það er hentugra fyrir okkur. Svo á hann að færast yfir í norðvestan og þá gæti orðið fjör,“ segir Hlynur.
Hann segir úrkomuna hafa reynst minni en fyrri spár gerðu ráð fyrir. „Við áttum svo sem aldrei von á mikilli úrkomu. Svo dró úr spánum og þetta er bara búið núna.“
Spurður hvort Norðfirðingar haldi sínu striki í veðri sem þessu svarar hann því játandi. „30 metrar á sekúndu er ekkert fyrir okkur. Við erum að fá það næstum í hverjum mánuði.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
