Einar óttast að gjaldþrotahrinu veitingafyrirtækja sé hvergi nærri lokið
Einar Bárðarson, framkvæmdastjóri SVEIT, Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, segir launakostnað sliga veitingafyrirtæki sé hjá fjölmörgum þeirra yfir helmingi veltunnar.
Þetta kemur fram í aðsendri grein Einars í Morgunblaðinu í dag en tilefni hennar er lokun Minigarðsins í vikunni. Segir Einar að kjarasamningar milli Eflingar og SA hafi ekki tekið mið af stöðunni í starfsgreininni:
„Stór hluti vandans liggur í þróun launakostnaðar, sérstaklega breytingum á kvöld- og helgarálagi í kjarasamningum Samtaka atvinnulífsins og Eflingar. SVEIT átti ekki sæti við samningaborðið og ekki var tekið nægilegt tillit til þess að mesta mannaflaþörf veitingastaða er einmitt á kvöldin og um helgar. Þegar stór hluti launahækkana lendir á þessum tímum verður kostnaðaraukningin sérstaklega þung. Við erum ekki á móti góðum launum, en launaþróun verður að vera í samhengi við rekstrargetu fyrirtækjanna. Það er engum til góðs að semja um laun sem fyrirtækin geta ekki staðið undir, allra síst starfsfólkinu sem missir síðan vinnuna.“
Hann segir að þegar hráefni, húsaleiga, orka, tryggingar og önnur útgjöld bætist við launakostnaðinn þá standi lítið eða ekkert eftir. Mörg fyrirtækjanna tapi peningum á því að hafa opið og það gangi ekki til lengdar.
Einar segir SVEIT hafa ítrekað kallað eftir aðgerðum til að bæta stöðu veitingafyrirtækja og hafi mætt skilningi á fundum með stjórnvöldum. En skilningur einn og sér dugi ekki til að leysa vandann:
„SVEIT hefur ítrekað kallað eftir aðgerðum sem gætu veitt veitingafyrirtækjum nauðsynlegt súrefni. Við höfum lagt fram hugmyndir um tímabundna endurgreiðslu hluta áfengisgjalda til rekstraraðila með vínveitingaleyfi, endurskoðun tryggingagjalds og einföldun leyfisferla og eftirlits. Við erum ekki að biðja ríkið að bjarga einstökum fyrirtækjum heldur skapa rekstrarumhverfi þar sem þau geta staðið undir launum, greitt skatta og haldið fólki í vinnu. Við höfum átt ágæta fundi með stjórnvöldum og mætt skilningi á stöðunni. En skilningur einn og sér greiðir ekki laun um mánaðamót. Nú þurfa að fylgja verk með orðum.“
Óttast fjöldagjaldþrot eftir áramót
Framundan er jólavertíðin sem vanalega reynist veitingastöðum hagstæð en Einar óttast gjaldþrotahrinu í janúar og febrúar:
„Ég óttast að við eigum eftir að sjá fleiri sambærilegar fréttir á fyrstu mánuðum næsta árs. Ekkert bendir til þess að rekstrarskilyrðin muni batna nægilega hratt. Það er heldur ekki sjálfgefið að nýir rekstraraðilar taki við þegar veitingastöðum er lokað. Stór veitingarými standa auð og fáir virðast tilbúnir að fjárfesta í rekstri sem á svo erfitt með að standa undir sér. Þannig getur tjónið orðið varanlegt.“
Einar varar við því að taka veitingastöðum sem sjálfsögðum og segir ekki eðlilegt að heil atvinnugrein glími við rekstrarvanda án viðbragða. Hann er með þessi skilaboð til stjórnvalda og almennings:
„Stjórnvöld þurfa að taka stöðuna alvarlega og almenningur má gjarnan styðja við sína uppáhaldsveitingastaði fyrir jól. Við megum ekki gera ráð fyrir að þeir verði allir opnir eftir áramót.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗