„Ég gæti misst vitið“
Farþegi óttaðist að missa af brúðkaupi dóttur sinnar og aðrir biðu í löngum röðum hjá bílaleigum í von um að komast á áfangastað eftir að flugtak var stöðvað um öll Bandaríkin í gær. Hundruð þúsunda farþega urðu strandaglópar og margir kvörtuðu undan misvísandi upplýsingum.
Flugumferð er nú hafin á ný. Bandaríska flugmálastofnunin, FAA, aflétti flugtakbanninu klukkan 1.15 í nótt að íslenskum tíma. Sean Duffy samgönguráðherra sagði þó að það tæki tíma að koma starfseminni í eðlilegt horf. Hann rakti vandann til bilana í fjarskiptum og áratugagamals búnaðar.
Óttaðist að missa af brúðkaupinu
Á LaGuardia-flugvellinum í New York var Janice Llewellyn gráti nær. Hún óttaðist að röskunin yrði til þess að hún missti af brúðkaupi dóttur sinnar í Toronto í Kanada og leitaði í örvæntingu að annarri leið þangað.
„Ég gæti misst vitið,“ sagði hún við AFP-fréttastofuna.
„Maðurinn minn flaug alla leið frá Englandi til að komast í brúðkaupið. Guð minn góður! Ég vildi óska að það væri annað flug, að ég gæti komist í annað flug strax.“
Á flugvellinum í Las Vegas fengu sumir farþegar þær upplýsingar að tafirnar stöfuðu af vindi. Einn starfsmaður flugfélags sagði að flugtakbannið myndi vara í átta klukkustundir. Annar sagði sólarhring.
Þreyttir farþegar horfðu á símana sína eða ráfuðu um flugstöðina án þess að vita hvert þeir ættu að snúa sér. Þeir voru rólegir en greinilega pirraðir. AFP
„Við erum eiginlega föst hérna“
Upplýsingaskorturinn varð til þess að margir leituðu annarra leiða til að komast á áfangastað. Langar raðir mynduðust við afgreiðsluborð bílaleiga.
Joseph Anderson, sem er 72 ára á eftirlaunum, sem starfaði áður í bandaríska flughernum, reyndi að komast heim til Oakland í Kaliforníu frá Las Vegas. Hann íhugaði að aka þangað.
„En ef allt landið er stopp þýðir það að umferðarteppur verða líka á þjóðvegunum,“ sagði hann.
Farangurinn hans hafði þegar verið innritaður og hann komst ekki í hann.
„Við erum eiginlega föst hérna,“ sagði Anderson og kallaði eftir betri upplýsingagjöf frá FAA.
Flugumferð er nú hafin á ný. Bandaríska flugmálastofnunin, FAA, aflétti flugtakbanninu klukkan 1.15 í nótt að íslenskum tíma. AFP
„Allt kvöldið eiginlega farið“
Á LaGuardia-flugvellinum beið Tiara Johnson, fimmtugur farþegi sem ætlaði á tónleika í Orlando í Flórída um helgina. Vonir hennar um að komast þangað í tæka tíð fóru dvínandi.
„Maður heldur að maður verði kominn eftir þrjá tíma en svo er allt kvöldið eiginlega farið,“ sagði hún við AFP.
„En það er nú sagt að það sé föstudagurinn þrettándi!“
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

