Gjafabréf sem lækka skattinn

Ragnar Schram, framkvæmdastjóri SOS-barnaþorpa á Íslandi, segir að með gjafabréfum SOS barnaþorpa sé verið að gefa fólki færi á að hjálpa til. mbl.is/Kristinn Magnússon

Matjurtagarður sem hjálpar fjölskyldu að afla sér matar. Verkfæri sem gera ungmennum kleift að hefja atvinnurekstur. Hreinlætisaðstaða sem getur skipt sköpum fyrir skólagöngu stúlku. Gjafabréf SOS Barnaþorpanna geta orðið að ýmiss konar stuðningi við börn og fjölskyldur þeirra löngu eftir að búið er að opna jólapakkana.

Ragnar Schram, framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna á Íslandi, segir gjafabréfin tengjast ákveðnum verkefnum sem samtökin hér á landi beri fjárhagslega ábyrgð á. Þannig geti gefandinn valið hvers konar stuðningur fylgi jólagjöfinni.

„Þetta eru allt verkefni sem við berum sjálf ábyrgð á. Framlögin vegna gjafabréfanna fara beint í þau verkefni sem er lýst á bréfunum,“ segir Ragnar.

Gjafabréf SOS Barnaþorpanna geta orðið að ýmiss konar stuðningi við börn og fjölskyldur þeirra löngu eftir að búið er að opna jólapakkana. Ljósmynd/Aðsend

Verða fyrir stríðni vegna blæðinga

Eitt gjafabréfanna ber heitið Sterkar stelpur og styður verkefni í Rúanda. Þar snýst aðstoðin um nokkuð sem getur haft mikil áhrif á nám stúlkna: að þær hafi aðgang að viðeigandi hreinlætisaðstöðu og stuðningi þegar þær eru á blæðingum.

Ragnar segir blæðingar geta orðið til þess að stúlkur veigri sér við að mæta í skólann. Þær geti orðið fyrir stríðni og aðstæðurnar valdið þeim óþægindum sem trufli skólagönguna.

„Við byggjum upp hreinlætisaðstöðu í skólum þar sem starfsmaður tekur á móti stúlkunum og aðstoðar þær. Þær fá dömubindi, geta þvegið sér og farið í sturtu. Þær geta líka fengið verkjalyf ef þær eru með verki. Þetta á að gera þeim kleift að mæta í skólann og fá aðstoð þar, í stað þess að þurfa að fara heim.“

Samhliða aðstöðunni er unnið að fræðslu sem beinist að drengjum.

„Við erum líka með fræðslu fyrir drengi um jafnrétti kynjanna. Þetta miðar allt að því að stelpurnar eflist,“ segir Ragnar.

Gjafabréfið getur þannig stutt bæði við aðstöðuna sem stúlkurnar þurfa og aukinn skilning meðal skólafélaga þeirra. Markmiðið er að blæðingar standi þeim ekki fyrir þrifum í námi.

Eitt gjafabréfanna ber heitið Sterkar stelpur og styður verkefni í Rúanda. Þar snýst aðstoðin um nokkuð sem getur haft mikil áhrif á nám stúlkna: að þær hafi aðgang að viðeigandi hreinlætisaðstöðu og stuðningi þegar þær eru á blæðingum. Ljósmynd/Aðsend

Þarfir hverrar fjölskyldu ráða för

Mörg gjafabréfanna eiga það sameiginlegt að hjálpa fólki að bæta eigin aðstæður til framtíðar. Húsdýr og matjurtagarður geta til dæmis styrkt afkomu fjölskyldu og hjálpað henni að afla matar. Að baki slíku framlagi liggur mat á því hvað nýtist hverri fjölskyldu best.

„Þetta eru oft fjölskyldur sem geta ekki gefið börnunum sínum nægilega næringu eða jafnvel sent þau í skóla. Foreldrarnir þekkja heldur ekki alltaf réttindi barnanna sinna. Þá stígum við inn og metum hver þörf hverrar fjölskyldu er,“ segir Ragnar.

„Það gæti verið að fá húsdýr eða ræktunarsvæði fyrir matjurtagarð. Það gæti líka þurft að koma upp kamri eða annarri hreinlætisaðstöðu. Stundum þarf lögfræðiaðstoð vegna fæðingarvottorðs barns. Þetta getur verið svo margt.“

Stuðningurinn tekur því mið af ólíkum hindrunum sem fjölskyldur standa frammi fyrir. Hjá einni fjölskyldu vantar aðstöðu til að rækta mat, hjá annarri grunnþjónustu eða aðstoð við að útvega nauðsynleg skjöl fyrir barn.

Ungmenni eiga einnig sinn stað í úrvalinu. Gjafabréfið Út á vinnumarkaðinn styður þau til iðnmenntunar eða við að eignast verkfæri, vélar og annan búnað sem þarf til að hefja atvinnurekstur. Þannig getur jólagjöfin orðið framlag til fyrstu skrefanna í átt að eigin lífsviðurværi.

Mörg gjafabréfanna eiga það sameiginlegt að hjálpa fólki að bæta eigin aðstæður til framtíðar. Húsdýr og matjurtagarður geta til dæmis styrkt afkomu fjölskyldu og hjálpað henni að afla matar. Ljósmynd/Aðsend

„Þetta fer raunverulega í það sem bréfið segir“

Ragnar leggur áherslu á að verkefnin að baki gjafabréfunum séu raunveruleg og fjárþörfin þekkt. Sala hvers bréfs taki mið af þeim kostnaði sem SOS Barnaþorpin á Íslandi hafi skuldbundið sig til að greiða.

„Við vitum nákvæmlega hvað við ætlum að kaupa mörg húsdýr á hverju ári og hver kostnaðurinn við hreinlætisaðstöðuna fyrir stúlkur verður. Við miðum gjafabréfin við það. Þegar við erum komin með þá upphæð sem við þurfum í ákveðinn lið stöðvum við sölu gjafabréfsins og byrjum ekki aftur fyrr en þörf er á meira fjármagni.“

Þetta segir hann skipta máli fyrir þá sem vilja vita hvað verði um framlagið.

„Það er það sem gerir þessi bréf svolítið ekta. Þetta er ekki bara einhver ímyndaður eða táknrænn stuðningur. Þetta fer raunverulega í það sem bréfið segir fyrir um.“

Gjafabréfið Út á vinnumarkaðinn styður þau til iðnmenntunar eða við að eignast verkfæri, vélar og annan búnað sem þarf til að hefja atvinnurekstur. Þannig getur jólagjöfin orðið framlag til fyrstu skrefanna í átt að eigin lífsviðurværi. Ljósmynd/Aðsend

Fyrir þau sem vantar ekkert

Gjafabréfin geta verið kærkominn kostur þegar velja á gjöf handa einhverjum sem á flest og kærir sig lítið um fleiri muni. Þau geta einnig fylgt öðrum gjöfum, hvort sem er frá fjölskyldu, vinum eða fyrirtæki sem vill láta stuðning við börn og fjölskyldur fylgja jólagjöf til starfsfólks.

Úrval gjafabréfanna var aukið fyrr á árinu. Ragnar segir söluna vera að aukast og þrjá kosti njóta mestra vinsælda.

„Neyðaraðstoðin er vinsælust og svo eru það Sterkar stelpur og húsdýrin. Þetta eru þessi þrjú gjafabréf sem flestir kaupa.“

Samkvæmt upplýsingum SOS Barnaþorpanna geta kaup á gjafabréfum jafnframt veitt rétt til lækkunar á skattstofni einstaklinga og fyrirtækja, að uppfylltum skilyrðum um frádrátt vegna framlaga til almannaheillafélaga.

Ragnar segir markmiðið að gefa fólki aðgengilega leið til að leggja verkefnunum lið. Einstakt gjafabréf leysi ekki allan vanda en það eigi sinn stað í starfinu.

„Það er enginn að fara að bjarga heiminum með einu svona gjafabréfi. En þarna erum við að gefa fólki færi á að leggja okkur lið.“

Ragnar leggur áherslu á að verkefnin að baki gjafabréfunum séu raunveruleg og fjárþörfin þekkt. Sala hvers bréfs taki mið af þeim kostnaði sem SOS Barnaþorpin á Íslandi hafi skuldbundið sig til að greiða. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅