Child, Ragnar og Yrsa í bókaspjalli
Innlent | Morgunblaðið | 14.11.2026 | 9:30
Breski spennusagnahöfundurinn Lee Child ræddi við rithöfundana Ragnar Jónasson og Yrsu Sigurðardóttur í Fríkirkjunni síðdegis í gær en spjall þeirra var einn fjölda viðburða á bókmenntahátíðinni Iceland Noir sem farið hefur fram í vikunni og lýkur í dag.
Child er þekktastur fyrir bækur sínar um harðhausinn Jack Reacher. Bækur hans hafa selst í yfir tvö hundruð milljónum eintaka um heim allan og verið þýddar á yfir 50 tungumál. Vinsælir þættir eftir sögunum hafa síðustu ár verið sýndir á Amazon Prime.
Síðasti dagur Iceland Noir er í dag og í Fríkirkjunni geta gestir hátíðarinnar meðal annars hlýtt á spjall skipuleggjenda hennar, Ragnars Jónassonar og Yrsu Sigurðardóttur, við kollega sinn Arnald Indriðason.
Hátíðinni lýkur á kokteilakvöldi á Edition-hótelinu í kvöld.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

