Gróft grín forsætisráðherra náðist á hljóðnema
Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu, og Chris Bowen loftslagsráðherra voru heldur kærulausir þegar þeir slógu á létta strengi með grófum brandara um kynfæri í samtali sem náðist á opinn hljóðnema á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP31, í Antalya í Tyrklandi.
Á upptökunni, sem ástralska sjónvarpsstöðin Channel Seven sýndi fyrst í gær, sjást ráðherrarnir spjalla á milli funda.
Albanese ráðleggur Bowen að geyma símann ekki við hjartað því það geti „truflað hjartsláttinn“.
Bowen svarar því til að hann hafi meiri áhyggjur af því að geyma símann í buxnavasanum.
„Vegna typpisins?“ spyr Albanese þá.
„Það má færa rök fyrir því að það sé mikilvægara en hjartað,“ svarar Bowen og hlær við.
„Þeir voru að grínast á milli funda,“ sagði talsmaður Albanese í svari við fyrirspurn AFP-fréttastofunnar.
Áður sætt gagnrýni fyrir gróft grín
Ástralía stýrir samningaviðræðunum á COP31-ráðstefnunni. Áströlsk stjórnvöld hafa þó verið sökuð um hræsni í loftslagsmálum enda er landið stór útflytjandi jarðefnaeldsneytis.
Albanese hefur áður á árinu sætt gagnrýni fyrir gróft grín. Meðal annars vöktu athygli ummæli hans í hlaðvarpi um að hann myndi „ríða“ söngkonunni Kylie Minogue. Þá lét hann einnig falla tvíræð ummæli með kynferðislegum undirtóni um melónur sem forsætisráðherra Japans hafði gefið honum.
Brandari um sjávarflóð vakti reiði
Albanese er þó ekki fyrsti ástralski forsætisráðherrann sem lendir í vandræðum vegna gríns sem næst á opinn hljóðnema.
Tony Abbott, fyrrverandi forsætisráðherra úr röðum íhaldsmanna, sætti gagnrýni árið 2015 fyrir að hlæja að brandara Peters Dutton, þáverandi innflytjendaráðherra, um stundvísi á Kyrrahafseyjum og hættuna á sjávarflóðum vegna loftslagsbreytinga.
„Tíminn skiptir engu máli þegar sjórinn er við það að ná upp að útidyrunum hjá þér,“ sagði Dutton áður en honum var bent á að enn væri kveikt á hljóðnema.
Ummælin vöktu reiði meðal leiðtoga Kyrrahafseyríkja.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
