Þak fauk á Ólafsfirði
Innlent | mbl | 14.11.2026 | 9:04
Vilhelm Þorsteinsson EA 11, uppsjávarskip Samherja, losnaði frá bryggju við höfnina í Krossanesi á Akureyri. Ljósmynd/Lögreglan á Norðurlandi eystra
Nokkur verkefni komu inn á borð viðbragðsaðila í Eyjafirði í gærkvöldi. Laust fyrir kl. 21 var tilkynnt um að þak væri að fjúka af húsi á Ólafsfirði og skömmu síðar barst önnur tilkynning um að rúða hefði brotnað í öðru húsi á Ólafsfirði.
Björgunarsveitir á Ólafsfirði og Siglufirði voru ræstar út í þau verkefni.
Þetta kemur fram í Facebook-færslu lögreglunnar á Norðurlandi eystra en þar segir að sömuleiðis hafi ein aðstoðarbeiðni borist vegna foktjóns á Dalvík og sinnti björgunarsveitin á Dalvík því verkefni.
Vilhelm mest krefjandi
Mest krefjandi verkefni kvöldsins hafi hins vegar verið þegar Vilhelm Þorsteinsson EA 11, uppsjávarskip Samherja, losnaði frá bryggju við höfnina í Krossanesi á Akureyri. Í ljós kom að bryggjupollar höfðu brotnað og hékk skipið á einni taug þegar að var komið.
Lóðsinn á Akureyri var ræstur út sem og björgunarsveitin Súlur á Akureyri. Mikið hafrót var í höfninni en með aðstoð lóðsins tókst að koma áhöfn um borð og setja vélar þess í gang. Lóðsinn aðstoðaði síðan við að ná skipinu úr höfninni.
Var því síðan siglt að Oddeyrarbryggju þar sem því var lagt. Ekki er talið að tjón hafi orðið á skipinu.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗