Telur að þarna hafi orðið ljóst að breytinga væri þörf hjá Manchester United
Helgi Fannar og Hörður Snævar fóru yfir allt það helsta í Íþróttavikunni á 433.is, eins og alla föstudaga.
Michael Carrick var á dögunum rekinn sem stjóri Manchester United og Mauricio Pochettino tekur við. Hörður taldi ljóst eftir 4-1 tap gegn Como í Meistaradeildinni að hann yrði ekki áfram.
„Ég held að menn hafi hugsað eftir Como-leikinn að það þyrfti að gera eitthvað, að hann væri ekki alveg maðurinn í þetta.
Svo komu alveg leikir, eins og gegn Chelsea, þar sem United var betra liðið. Endurkoman gegn Roma og svo þessi Villa leikur. Ég hafði gaman að Carrick en ég veit bara ekki hversu mikið drive hann hafði sjálfur í að vera þarna. Þú þarft að vera all-in í þjálfun, hvað þá á þessu stigi,“ sagði Hörður.
„Félagið svolítið sveik hann líka og sendi hann inn í tímabilið með hóp sem var ekkert klár í að fara að keppa í mörgum keppnum.“
Þátturinn er í spilaranum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗