Sakar Arnar Þór um ógnandi framkomu í bókabúð

Ágúst Borgþór Sverrisson

Laugardaginn 14. nóvember 2026 09:02

Arnar Þór Jónsson. Mynd: DV/KSJ

Sigurður H. Einarsson vélvirki, sem hefur verið virkur í starfi Sósíalistaflokksins, sakar Arnar Þór Jónsson, fyrrverandi héraðsdómara, forsetaframbjóðanda og formann Lýðræðisflokksins, um ógnandi framkomu í sinn garð í bókabúð. 

Sigurður H. skrifar í Facebook-hópinn „Rauði þráðurinn“: 

„Eru hægri öfgamenn að missa sig?

Fátt er ánægjulegra á þessum árstíma að fara í bókabúðir skoða hvað er komið út lesa bakhluta bókanna, og skoða úrvalið. Handleika nýjar bækur það er skemmtilegt. 

En í dag var það ekki skemmtilegt. Þegar ég var í rólegheitum að skoða bækur kom maður að mér og spurði mig til nafns. Þegar ég sagði honum það þá byrjaði hann orðaflaum um það af hverju ég teldi hann vera hægri öfgamann. Þarna var þá kominn Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi með meiru, Ég reyndi að útskýra það af hverju ég teldi hann hægri öfgamann, maðurinn var síðan æstari og æstari og að lokum varð maðurinn mjög ógnandi, tók í mig og ekki var um það að villast að maðurinn vildi berja mig. En kona, líklega konan hans kom og dró hann burtu. Hvernig hefði farið ef þessi drullusokkur hefði verið einn??

Langaði að koma fram með þetta innlegg sem umhugsun hvert þessi stjórnmálaumræða er kominn. Er næsta stig ofbeldi???“

Í umræðum undir færslunni lýsa sumir yfir efasemdum um að atvik hafi verið með þessum hætti. DV sendi fyrirspurn um málið til Arnars Þórs og verða svör hans birt ef þau berast. Arnar sendir hins vegar eftirfarandi orðsendingu til sósíalista á Facebook-síðu sinni í morgun: 

„Kæru sósíalistar, nær og fjær, þið sem aðhyllist eignaupptöku með stöðugt hækkandi sköttum og viljið þenja út ríkisvald á kostnað einstaklingsfrelsis. Hér er vinsamleg ábending til ykkar: Ef þið viljið saka aðra um það sem internasjonal (og nasjonal) sósíalistar hafa boðað, þ.e. alræði, ritskoðun, valdboð, mismunun o.s.frv., þá er lágmarkskrafa að menn færi fram rökstuðning. Í mínu tilviki ætti það að vera mjög auðvelt. Hægt er að leita á bloggsíðu minni sem geymir daglegar færslur mörg ár aftur í tímann (á að giska 1400 færslur), auk tuga greina sem birst hafa í Mbl, Vísi og víðar. Ef menn finna einhverjar greinar / málsgreinar / setningar sem styðja það að ég deili slíkum skoðunum, þá skal ég svara fyrir allt sem ég hef skrifað - og fer ekki fram á annað en að ásakandinn standist sömu viðmið. Góðar stundir." 

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅