Líður eins og hún sé komin heim í New York
Birta Björg Alexandersdóttir hefur ferðast víða og dreymir meðal annars um að fara til Ástralíu. Ljósmynd/Aðsend
Birta Björg Alexandersdóttir er 26 ára gömul flugfreyja og förðunarfræðingur. New York er í miklu uppáhaldi hjá Birtu sem líður alltaf eins og hún sé komin heim þegar hún er komin til borgarinnar.
„Ferðaáhuginn kviknaði líklegast þegar ég var lítil. Ég æfði fimleika og fór snemma í keppnis- og æfingaferðir erlendis. Þær ferðir voru alltaf ævintýri, nýir staðir, nýtt umhverfi og allskonar upplifanir. Ég held að það hafi verið smá byrjunin á forvitninni hjá mér og lönguninni til að sjá meira af heiminum,“ segir Birta
Hvernig ferðalögum ertu hrifin af?
„Ég er mjög hrifin af bæði borgarferðum og sólarlandaferðum. Mér finnst gaman að skoða borgir, kynnast menningunni og prófa nýjan mat, en líka njóta þess að slaka á í sólinni. Best finnst mér þegar ferðalagið býður upp á smá af hvoru tveggja og ekki af of miklum plönum. Ég elska að rölta um borgir og týnast svolítið í hverfunum — helst án þess að vera með Google Maps opið allan tímann. Þá rekst maður oft á falin kaffihús, litlar verslanir og staði sem maður hefði annars ekki fundið.“
New York er alltaf skemmtileg
Áttu uppáhalds borg í Evrópu og af hverju?
„Ég verð að segja Kaupmannahöfn eða Róm. Þær eru í miklu uppáhaldi hjá mér — tvær ólíkar borgir sem heilla mig hvor á sinn hátt. Í Róm heillast ég af sögunni, matnum og einstökum sjarma borgarinnar, hvert sem maður lítur er falleg sjón, allt mjög myndrænt. Kaupmannahöfn heillar mig með fallegum götum, skemmtilegri og fjölbreyttri tísku og ómótstæðilegu bakkelsi.“
En fyrir utan Evrópu?
„New York á mjög sérstakan stað í hjarta mínu. Í hvert sinn sem ég kem þangað líður mér eins og ég sé komin heim, svo margt hægt að skoða og maður getur haft dagana sína þar svo ótrúlega fjölbreytta og mismunandi eftir því hvað maður sé í stuði fyrir, hvort sem maður vill versla, skoða sig um, leyfa sér að uppgötva eitthvað nýtt á hverju götuhorni, eða bara hafa það notalegt í Central Park að fylgjast með lífinu í garðinum. Hún býður upp á svolítið af öllu sem er líklegast ástæðan af hverju mér þykir svo vænt um hana.“
Eyjahopp í Grikklandi var eftirminnilegt
Hvert er eftirminnilegasta ferðalagið sem þú hefur farið í?
„Líklegast nýlegasta ferðalagið hjá mér sem var næstum þriggja vikna eyjahopp um Grikkland í sumar. Ótrúlega skemmtileg upplifun og lítið um plön, þar sem ég var mikið að vinna með að bóka gistingar með dags fyrirvara, ferðast um á fjórhjólum um eyjarnar og borða ótrúlega fjölbreyttan og góðan mat. Mér finnst þannig ferðalög ótrúlega skemmtileg og gaman að leyfa sér að lifa algjörlega í núinu og njóta hvers augnabliks sem maður gleymir oft.“
Er einhver staður sem þú hefur komið til sem hefur komið þér á óvart?
„Kannski nýlega þá er það Aþena, ég bjóst við allt öðruvísi borgarstemningu og fallegri byggingum en upplifun mín var snaröfug, hún var frekar óþrifin, mikið af veggjakroti og yfirgefnum byggingum, sem ég fékk samt skýringu seinna meir af heimamanni að flestir heimamenn væru nú bara í sumarfríi og þyrfti því að koma á öðru tímabili og upplifa hana þá. En ekki misskilja hún heldur algjörlega sínum hráa sögulega sjarma líka.“
Skemmtilegast að versla í Toronto og Kaupmannahöfn
Hvar færðu besta matinn?
„Fyrir besta matinn þá er allt gott á Ítalíu annars er ég orðin rosalegur Gyros aðdáandi eftir að hafa smakkað það á Grikklandi í fyrsta skiptið í sumar og frosnu grísku jógúrti mæli svo mikið með því.“
Hvar finnst þér skemmtilegast að versla þegar þú ert erlendis?
„Toronto eða Kaupmannahöfn. Það eru ótrúlega fínar verslunarmiðstöðvar í Toronto og mikið af skemmtilegum búðum. Á Queen street eru einnig mikið af skemmtilegum búðum sem selja notuð föt. Á sama tíma þá elska ég tískuna í Kaupmannahöfn, rölta á Strikinu og skoða búðirnar sem selja notuð föt þar í kring.“
Ferðaráð frá flugfreyju
Hvernig heldur þú þér ferskri þegar þú ert að ferðast mikið og ferð í löng flug?
„Ég reyni að hugsa ótrúlega vel um mig á löngum ferðalögum, svefn er algjörlega númer eitt, tvö og tíu. Ég reyni að forgangsraða því, einnig passa ég að drekka nóg af vökva og tek alltaf með mér sölt og steinefni eins og til dæmis Radiant sem ég get blandað í vatn, ég passa mig einnig mjög mikið á hvað ég borða og reyni helst að borða frekar fyrir flug heldur en í flugi þar sem mér finnst oft fylgja mikil uppþemba og bjúgur. Ég passa að nota gott rakakrem, varasalva og hafa augndropa meðferðis í flug. Ég tek alltaf með mér ræktarföt og skó þar sem mér finnst hreyfing vera besta meðalið fyrir flugþreytu og finnst það alltaf snarvirka þó ég hafi enga löngun, þá líður mér alltaf mun betur eftir það.“
Hvað ertu alltaf með í handfarangri?
„Ég er alltaf með hleðslutæki, myndavélina mína, varasalva, augndropa, airpods, svefngrímu og eyrnatappa. Aukalega ferðast ég með vatnsbrúsa + sölt og steinefni, ég tek yfirleitt einhvers konar snarl með mér, bók, hárbursta og augnhárabrettara.“
Hvert dreymir þig um að fara?
„Mig dreymir til dæmis að ferðast til Japans, Ástralíu og á fleiri framandi slóðir. Japan hefur alltaf heillað mig, bæði menningin, borgin sjálf og maturinn. Ástralía er svo drauma áfangastaður vegna náttúrunnar og ævintýrinu sem fylgir því að ferðast hinum megin á hnöttinn.“
内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/72/1687224.jpg)





