41 milljarðs hækkun á 2 árum

Fjárheimild til málaflokks örorku og fatlaðs fólks var 112,5 milljarðar í fjárlögum ársins 2025 en hækkar í fjárlagafrumvarpinu upp í 153,5 milljarða á næsta ári. Langstærsti hluti fjárhæðarinnar er vegna örorku. mbl.is/Hákon

Fjárheimild ríkissjóðs til örorku og málefna fatlaðs fólks hefur hækkað um 41 milljarð króna á milli fjárlaga ársins 2025 og fjárlagafrumvarps ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027.

Þetta er álíka há fjárhæð og veita á til sérfræðiþjónustu og hjúkrunar utan sjúkrahúsa skv. fjárlagafrumvarpi næsta árs og tæpum tveimur milljörðum hærri fjárhæð en sem nemur heildarfjárheimildum lögreglunnar og Landhelgisgæslunnar til samans árið 2027.

Fjárheimild til málaflokks örorku og fatlaðs fólks var 112,5 milljarðar í fjárlögum ársins 2025 en hækkar í fjárlagafrumvarpinu upp í 153,5 milljarða á næsta ári. Langstærsti hluti fjárhæðarinnar er vegna örorku.

Þá er umrædd 41 milljarðs króna hækkun til málaflokksins einum milljarði hærri en fjárfestingarframlög til samgangna skv. fjárlagafrumvarpi næsta árs og sama fjárhæð og veitt verður til sveitarfélaga og byggðamála skv. sama frumvarpi. Þá er fjárhæðin um 5,3 milljörðum hærri en frumvarpið gerir ráð fyrir að varið verði til greiðslu fæðingarorlofs, en upphæðin sem veita á til þess málaflokks er 35,7 milljarðar.

Einnig má nefna að framangreind hækkun upp á 41 milljarð er 2,6 milljörðum króna hærri en verja á til lyfjakaupa skv. fjárlagafrumvarpinu, en í þann málaflokk eiga að fara 38,4 milljarðar á næsta ári.

Gríðarlega mikil hækkun

„Þetta er gríðarlega mikil hækkun, hún er 2/3 hlutar þess fjármagns sem fer í fjárlagaliðinn framhaldsskólar. Þegar fjárlagafrumvarpið er skoðað sést að verið er að minnka fjárfestingar alls staðar, þvert á það sem lofað var,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður Sjálfstæðisflokksins við Morgunblaðið.

Hann segir að þótt örorkubætur séu tengdar við launavísitölu sé ekki verið að hjálpa þeim sem minnst hafa, sem sé umhugsunarvert.

„Hækkun um 41 milljarð tekur í raun allt svigrúm sem ríkisstjórnin hefur og er væntanlega ein ástæða þess að hún skattleggur allt sem hún mögulega getur og er auk þess að leita að peningum í ríkisfyrirtækjum, eins og Landsvirkjun. Hvernig verður staðan eftir 5 eða 10 ár, ef þetta heldur svona áfram?“ spyr hann.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅