Mjög hvasst í nótt

Innlent | mbl | 14.11.2026 | 8:09

Svona leit Fjarðarheiðin út í morgunsárið.

Svona leit Fjarðarheiðin út í morgunsárið. Skjáskot/Vegagerðin

„Það var mjög hvasst í nótt og það er ennþá mjög hvasst á austanverðu landinu. Það hefur verið ágætis hríðarveður.“

Þetta segir Haraldur Eiríksson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, spurður hvort að óveðurspár á norðan- og austanverðu landi hafi ræst í nótt.

Spurður út í horfurnar fram eftir degi segir hann: „Það hefur dregið mikið úr ofankomunni, en það er ennþá mjög hvasst á Austurlandi. Það dregur hægt og bítandi úr veðurofsanum í dag.“

Appelsínugul veðurviðvörun ríkir á Austurlandi að Glettingi, Austfjörðum og á Suðausturlandi. Gul viðvörun er á miðhálendinu.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅