Gamla ljósmyndin: Láta víða að sér kveða

Íþróttadeild Morgunblaðsins og mbl.is heldur áfram að gramsa í myndasafni Morgunblaðsins og birta á mbl.is á laugardögum. 

Gamla ljósmyndin þennan laugardaginn er athyglisverð en hún er blanda af einstaklingum sem gerðu það gott í badmintoníþróttinni og einstaklingum sem eru í reynd þekktari fyrir annað. 

Á myndinni má sjá D-lið TBR sem sigraði í 1. deild eða sveitakeppni Badmintonsambands Íslands árið 1989.

Frá vinstri: Þorsteinn Páll Hængsson, Þórdís Edwald, Sigfús Ægir Árnason, Anna Steinsson, Friðrik Jón Arngrímsson og Friðrik Þór Halldórsson. 

Myndina tók ekki ómerkari ljósmyndari en Árni Sæberg sem er enn að hjá Morgunblaðinu og mbl.is. Myndin er greinilega tekin í Laugardalshöll. 

Þorsteinn Páll og Þórdís Edwald eru margfaldir Íslandsmeistarar og unnu bæði í einliðaleik sem í tvíliða- eða tvenndarleik á sínum ferli. Sigfús Ægir varð einnig Íslandsmeistari en kom síðar mjög við sögu í íþróttinni sem umsjónarmaður í TBR-húsinu um langa hríð. 

Anna Steinsen sem þarna er á unglingsaldri var vissulega efnileg í badminton en hélt öllu lengur áfram í handboltanum og var til að mynda í bikarmeistaraliði Vals árið 2000. Hún hefur í seinni tíð verið áberandi sem fyrirlesari og ráðgjafi, til dæmis lengi hjá Dale Carnegie. 

Friðrik Jón var reglulega í fjölmiðlum á sínum tíma sem framkvæmdastjóri LÍU og talsmaður útgerðarmanna. 

Friðrik Þór hefur lengi verið á bak við sjónvarpsvélarnar og er reyndastur Íslendinga þegar kemur að því að sjónvarpa frá golfmótum. Hefur hanna skapað sér nafn erlendis á þeim vettvangi og verið sjónvarpsmaður á The Open Championship og Evrópumótaröðinni. 

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅