Stórhríð fram eftir degi
Innlent | mbl | 14.11.2026 | 7:34
Norðan og norðvestan stórhríð verður um landið austanvert fram eftir degi.
Þetta kemur fram í athugasemd veðurfræðings á vef Veðurstofunnar.
Einnig má búast við norðvestan stormi eða roki á Suðausturlandi og Austfjörðum fyrri part dags.
Appelsínugul veðurviðvörun ríkir á Austurlandi að Glettingi, Austfjörðum og á Suðausturlandi. Gul viðvörun er á miðhálendinu.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗