Tveir karlar og ein kona handtekin fyrir rán

Óskað var aðstoðar lögreglu í miðborginni í nótt vegna ráns. Þrjú eru grunuð um aðild að málinu, tveir karlar og ein kona. Voru þau öll vistuð í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins. 

Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Þar greinir einnig frá eftirför lögreglu sem leiddi til áreksturs: „Lögreglumenn ætluðu að stöðva ökumann bifreiðar til að kanna með réttindi og ástand. Sá hlýddi ekki fyrirmælum lögreglu og hófst þá eftirför. Ökumaður ók bifreið á aðra bifreið sem var þó mannlaus og á endanum var bifreiðin stöðvuð og tveir sem voru í bifreiðinni handteknir. Ökumaðurinn vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.”

Alls voru 70 mál skráð í kerfum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá kl. 17 í gær til kl. 5 í morgun. Sjö gista fangageymslur. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅