Minni sala hjá ÁTVR en Santé mokar út

Tuborg Julebryg er vinsæll.

Tuborg Julebryg er vinsæll. mbl.is/Eyþór

Samdráttur í sölu á jólabjór hjá Vínbúðum ÁTVR nemur 29% á milli ára. Þetta sýna tölur sem stofnunin tók saman að beiðni Morgunblaðsins um sölu fyrstu vikuna.

Sem kunnugt er hafa netverslanir með áfengi verið að sækja í sig veðrið síðustu misseri. Að þessu sinni flutti ein þeirra, Santé, inn mikið magn af Tuborg julebryg og selur hann 20% ódýrar en ÁTVR gerir.

Neytendur virðast kunna vel að meta þetta og í fyrstu söluvikunni seldust 25.320 dósir, um 8.360 lítrar. Santé selur einnig aðrar gerðir af jólabjór og þegar allt er talið hefur verslunin selt 10.460 lítra.

Nánar í Morgunblaðinu í dag.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅