Finna þarf nýjar leiðir
Innlent | Morgunblaðið | 14.11.2026 | 7:15
Hvorki fyrirhuguð sala Keldnalands né áform um fjármögnun samgöngusáttmálans með tafa- og umferðargjöldum hafa gengið eftir eins og til stóð. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir stöðuna áhyggjuefni en telur þó ekki ástæðu til að óttast um framtíð sáttmálans.
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri hefur lýst því yfir að fjármögnun sáttmálans sé í uppnámi og hafnað veggjöldum á núverandi stofnvegum. Daði Már tekur ekki undir það mat hennar en viðurkennir fúslega að finna þurfi nýjar lausnir á fjármögnuninni.
Hann segir ríkið ætla að standa við sinn hluta sáttmálans, hvort sem það verði með beinum fjárframlögum eða lántökuheimildum. Jafnframt þurfi að fara varlega í að endurskoða forgangsröðun framkvæmda, sem nýr meirihluti í Reykjavík hefur kallað eftir.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗