Flugumferð hafin á ný: Nærri 6.000 ferðum aflýst

Fólk beið á flugvöllum víða um Bandaríkin.

Fólk beið á flugvöllum víða um Bandaríkin. AFP

Flug í Bandaríkjunum hófst á ný í dag eftir miðnætti í dag eftir að flugvélar höfðu verið kyrrsettar í nokkrar klukkustundir vegna umfangsmikillar bilunar í fjarskiptakerfum.

Flugbannið, sem náði til landsins alls, olli ringulreið og skildi hundruð þúsunda farþega eftir í óvissu.

Þetta var aðeins í annað sinn frá hryðjuverkaárásunum 11. september sem slík viðvörun hefur verið gefin út í bandarískri lofthelgi.

Flugbannið stóð í um fjórar klukkustundir og var aflétt klukkan 01.15 í nótt.

Kenna úreltu kerfi um

Embættismenn Bandarísku flugmálastjórnarinnar (FAA) opnuðu lofthelgina á ný „eftir að hafa komið allri virkni í lag“ í flugstjórnarmiðstöðvum, að sögn Seans Duffy samgönguráðherra.

„Það mun taka okkur tíma að koma starfseminni í eðlilegt horf... Okkar helsta forgangsatriði er öryggi ykkar og fjölskyldna ykkar þegar þið fljúgið,“ sagði Duffy.

Embættismenn stjórnarinnar kenndu fjarskiptavandamálum í áratugagömlum búnaði um atvikið og bættu við að ekkert benti til þess að um skemmdarverk hefði verið að ræða.

„Þetta er vandamál sem stafar af úreltu kerfi,“ sagði Duffy. „Við erum með gamla, gamla skiptibúnaði og gamla beina.

„Við notum litlar koparlínur frá níunda áratugnum. Þetta er gamalt kerfi sem bilaði, og bilaði alls staðar. Það varð fyrir ofálagi.“

Nærri 6.000 flugferðum var aflýst vegna bilunarinnar, þar á meðal sumum millilandaferðum, samkvæmt flugrakningarvefnum FlightAware.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅