Minni sala hjá ÁTVR en Santé mokar út
Samdráttur í sölu á jólabjór hjá Vínbúðum ÁTVR nemur 29% á milli ára. Þetta sýna tölur sem stofnunin tók saman að beiðni Morgunblaðsins um sölu fyrstu vikuna.
Sem kunnugt er hafa netverslanir með áfengi verið að sækja í sig veðrið síðustu misseri. Að þessu sinni flutti ein þeirra, Santé, inn mikið magn af Tuborg julebryg og selur hann 20% ódýrar en ÁTVR gerir.
Neytendur virðast kunna vel að meta þetta og í fyrstu söluvikunni seldust 25.320 dósir, um 8.360 lítrar. Santé selur einnig aðrar gerðir af jólabjór og þegar allt er talið hefur verslunin selt 10.460 lítra.
Nánar í Morgunblaðinu í dag.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗