Neyðast til að innkalla gallaða smokka – Önnur innköllunin á árinu

Umboðsmaður neytenda í Frakklandi hefur látið innkalla smokka eftir að alvarlegir framleiðslugallar uppgötvuðust. Þessir gallar gera að verkum að öryggi smokkanna er mun minna en vera ætti og þar með gera þeir ekki það sem þeir eiga að gera við að koma í veg fyrir þungun eða útbreiðslu kynsjúkdóma.

The Independent segir að mörg hundruð þúsund smokkar verði innkallaðir vegna hættu á að þeir rifni eða springi við notkun.

Umboðsmaðurinn tilkynnti nýlega að öll sala og innflutningur á smokkum, frá þeim framleiðendum sem notuðust við ákveðna framleiðsluaðferð, verði bannaður í eitt ár.

Segir umboðsmaðurinn að rannsókn hafi leitt í ljós að framleiðsluaðferðin, sem er notuð við framleiðslu ofurþunnra smokka, geri að verkum að hætta sé á að þykkt og gæði gúmmísins sé ekki eins og á að vera.

260.000 smokkar voru innkallaðir í ágúst af sömu ástæðu.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅