Dóttir og eiginkona morðingjans rifja upp hið afdrifaríka kvöld - „Sagði að hann væri ágengur og væri að snerta hana“

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Daniel Correa Freitas var myrtur á hrottalegan hátt árið 2018 eftir afmælisveislu í Curitiba í Brasilíu. Allana Brittes, dóttir morðingjans, rifjaði upp atburðarásina í viðtali.

Allana var að halda upp á 18 ára afmælið sitt þegar Correa, sem hafði meðal annars leikið með stórliðum Sao Paulo og Botafogo, mætti óboðinn heim til fjölskyldunnar ásamt vinum hennar.

„Ég hafði þegar verið á næturklúbbum og hafði því ekkert skipulagt eftirpartí,“ sagði Allana í viðtali við brasilíska sjónvarpsþáttinn Domingo Espetacular.

Hún hafði farið heim með fjölskyldu sinni þegar vinkona hennar, Evellyn, sendi henni óvænt skilaboð.

„Hún sendi mér skilaboð og sagði: Ekki vera reið út í mig, ég er að koma heim til þín. Ég skildi ekkert í þessu því ég hafði ekki boðið neinum.“

Vinkonan sagði henni að Correa væri með í för en að hún væri ekki sátt við hegðun hans.

„Hún sagði að hann væri með þeim en að hún vildi ekki vera með honum. Hann væri ágengur og væri að snerta hana.“

Daniel Correa.

Síðar um nóttina fór Correa inn í svefnherbergi foreldra hennar og tók myndir af sér við hlið móður hennar, Cristiana, sem var sofandi. Hann sendi myndirnar til vina sinna á WhatsApp og sagðist ætla að sofa hjá móður afmælisbarnsins.

Cristiana hefur sjálf lýst því að Correa hafi brotið gegn sér kynferðislega á meðan hún svaf.

„Það var brotið gegn mér. Hann fór úr buxunum, klifraði upp á mig, nuddaði kynfærum sínum við mig og tók myndir,“ sagði hún í sama sjónvarpsþætti.

Faðir Allönu, Edison Brittes, kom að þeim í svefnherberginu og réðst á knattspyrnumanninn ásamt öðrum mönnum.

„Ég hafði aldrei séð föður minn svona áður. Hann var gjörsamlega stjórnlaus af reiði,“ rifjaði Allana upp.

Hún sagði alla viðstadda hafa verið í áfalli yfir því sem gerðist.

Í kjölfarið var farið með Correa út í skóg þar sem hann var myrtur. Lík hans fannst síðar og kom í ljós að hann hafði verið skorinn á háls, auk þess sem kynfærin voru skorin undan honum.

Edison var dæmdur í rúmlega 42 ára fangelsi fyrir morðið en eiginkona hans hlaut einnig dóm fyrir að hafa reynt að villa um fyrir rannsókn lögreglu.

Allana er í dag gift David Vollero, einum mannanna sem komu að árásinni á Correa. Hann var sýknaður af aðild að morðinu en Allana segir hann hafa viðurkennt þátttöku í líkamsárásinni.

„David gerði mér alltaf ljóst frá upphafi að hvorki hann né hinir strákarnir hefðu gert neitt meira. Þeir réðust á hann, já, en frá því að þeir fóru inn í bílinn gerðu þeir ekkert annað.“

Allana segist sannfærð um að eiginmaður hennar hafi ekki átt þátt í morðinu.

„Ég veit að hann drap hann ekki og kom hvergi nærri dauða Daniels.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅