Korti stórstjörnunnar hafnað

Íþróttir | mbl | 14.11.2026 | 7:00

Luke Littler er efsti maður heimslistans.

Luke Littler er efsti maður heimslistans. Ljósmynd/AFP

Enska pílukastskonan Fallon Sherrock grínaðist með að hún hefði þurft að borga fyrir Luke Littler eftir að hafa unnið 501.000 pund með því að sigra heimsmeistarann í þætti Netflix, Beat Luke Littler.

„Kortinu hans var hafnað, best að ég borgi,“ skrifaði hin 32 ára gamla Sherrock á Instagram við mynd af þeim tveimur.

Þátttaka hennar vakti gagnrýni þar sem þátturinn var ætlaður áhugamönnum, en hún uppfyllti skilyrðin þar sem hún er ekki með keppnisrétt á PDC-mótaröðinni.

„Þetta verðlaunafé breytir lífi mínu. Það á svo sannarlega eftir að breyta lífi mínu,“ sagði Sherrock í samtali við The Sun. „Mér finnst eins og fólk haldi að ég eigi meiri peninga en ég á.“

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅