Aðsend grein: Menning undir sömu stjörnu

Ísólfur Gylfi Pálmason

Ísólfur Gylfi Pálmason

Aðsend grein úr Morgunblaðinu

„Undir sömu stjörnu“ er magnaður menningarviðburður sem við Sunnlendingar upplifðum í Skálholti fyrir skemmstu.

Um er að ræða opnunarviðburð hinnar nýju Þjóðaróperu. Slíkir viðburðir hafa verið haldnir í öðrum landshlutum, á Akureyri og Eskifirði og í Hljómahöllinni í Keflavík. Loks verður viðburðurinn haldinn í heimahúsi Óperunnar, Þjóðleikhúsinu í Reykjavík, þann 15. nóvember.

Í raun er verið að kynna nýju Óperuna með afar fróðlegum og skemmtilegum hætti fyrir alla landsmenn. Á hverjum stað hafa heimamenn stóru hlutverki að gegna. Boðið er upp á ferðalag um óperusöguna og kynnar eru leikararnir Örn Árnason og Ólafía Hrönn. Þau rekja söguna á húmorískan hátt og í viðeigandi búningum. Markmiðið með þessum sýningum er að Þjóðaróperan sé og verði ópera allra landsmanna.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅