„Margir í kringum okkur ráku upp stór augu!“
Þau eiga og reka veitingastaðinn Sól. Þetta eru Brjánn Guðjónsson, Guðrún Auður Böðvarsdóttir, Björk Bjarnadóttir og Sölvi Steinarr. mbl.is/Árni Sæberg
Guðrúnu Auði Böðvarsdóttur líður best þegar skipulagið er gott og hlutirnir á hreinu. Henni finnst því svolítið skondið að hafa farið út í veitingarekstur, þar sem vandlega undirbúinn dagur getur tekið óvænta stefnu.
Guðrún Auður er framkvæmdastjóri og einn eigenda Sólar Restaurant, auk þess að vera markaðsstjóri og eigandi S. Helgasonar steinsmiðju. Hún stendur að staðnum ásamt eiginmanni sínum, Brjáni. Með þeim í rekstrinum eru hjónin Sölvi Steinarr og Björk Bjarnadóttir.
„Sölvi og Björk fengu hugmyndina að Sól og byrjuðu að hrinda henni í framkvæmd. Þau fengu svo mig og manninn minn, Brján, með sér í verkefnið til að koma því alla leið og bæta við okkar sýn.“
Ekkert þeirra hafði áður starfað í veitingageiranum.
„Ansi margir í kringum okkur ráku upp stór augu! Björk og Sölvi reka Sólgarð og við Brjánn rekum S. Helgason steinsmiðju. Við höfum því öll mikla reynslu af eigin rekstri, bara á allt öðrum sviðum.“
Ekki hægt að hafa stjórn á öllu
Guðrún Auður segir verkefnið hafa kallað á að hún endurskoðaði eigin vinnubrögð.
„Ég er í grunninn frekar skipulögð og mér finnst gott að hafa gott plan og hlutina á hreinu. Það er því eiginlega ótrúlegt að ég hafi ákveðið að fara út í veitingabransann, þar sem maður getur skipulagt allt niður í minnstu smáatriði og samt gerist eitthvað allt annað!“
Það hefur tekið á að sætta sig við óvissuna.
„Ég hef þurft að læra að sleppa aðeins takinu, treysta fólkinu í kringum mig og sætta mig við að það er ekki hægt að hafa stjórn á öllu, sem hefur nú ekki alltaf verið auðvelt fyrir mig!“
Jafnframt sé þessi lærdómur hluti af ánægjunni sem hún tekur út úr starfi sínu.
„En það er kannski einmitt það sem hefur verið svo skemmtilegt við þetta verkefni. Að fara út fyrir þægindarammann, læra eitthvað alveg nýtt og sjá hvað hægt er að skapa þegar ólíkt fólk með mismunandi styrkleika vinnur saman.“
Stuðlaberg og gróður setja svip á Sól, þar sem náttúran er í forgrunni jafnt innan dyra sem utan. mbl.is/Árni Sæberg
Bóndadraumurinn rættist við sjóinn
Sölvi og Björk áttu lóð á hafnarsvæðinu í Hafnarfirði og vildu búa til eitthvað nýtt þar. Gróðurhúsið og veitingastaðurinn voru frá upphafi hugsuð sem ein heild.
„Það sem kemur mörgum á óvart er að þau sáu þetta í raun nákvæmlega svona fyrir sér alveg frá upphafi. Þetta var ekki hugmynd sem þróaðist eftir á, heldur framtíðarsýnin þeirra frá fyrsta degi.“
Með gróðurhúsinu rættist jafnframt gamall draumur Sölva.
„Sölva hafði alltaf dreymt um að verða bóndi en aðstæður höfðu aldrei verið réttar til þess. Í dag er hann hins vegar orðinn stoltur grænmetisbóndi í fallega gróðurhúsinu okkar þar sem við ræktum ýmsar tegundir af salati, grænkál, tómata, gúrkur, kryddjurtir og blóm. Einnig bruggum við okkar eigin bjór svo það er heljarinnar framleiðsla í gróðurhúsinu fyrir veitingastaðinn.“
Þau hjónin fylgjast náið með ræktuninni.
„Þau hjónin eru því vakin og sofin yfir gróðurhúsinu og ræktuninni og það er ótrúlega gaman að sjá þessa hugmynd, sem þau höfðu svo skýra frá upphafi, orðna að veruleika.“
Gestir sitja ofan á gróðrinum
Tengingin við ræktunina er sýnileg gestum Sólar. Glergólf gerir þeim kleift að fylgjast með gróðrinum fyrir neðan sig og útsýnið nær yfir lónið.
„Eitt af því sem einkennir Sól er glergólfið þar sem gestir sitja bókstaflega ofan á gróðrinum og geta fylgst með því sem er ræktað og síðan nýtt í matargerðina.“
Jón yfirkokkur hefur verið með frá upphafi og leggur að sögn Guðrúnar Auðar áherslu á að nýta uppskeruna. Sama á við um barinn, þar sem kryddjurtirnar rata bæði í drykki og skreytingar.
„Við ræktum til dæmis mikið af basilíku og vinsælasti drykkurinn okkar er Basil Gimlet. Þannig er gróðurhúsið ekki bara falleg umgjörð utan um veitingastaðinn heldur stór hluti af því sem við gerum og við vinnum mikið út frá því sem er í boði hverju sinni.“
Rétturinn „Tómatar og ostur“ hefur verið meðal þeirra vinsælustu frá opnun.
„Þar notum við nýtínda tómata beint úr gróðurhúsinu ásamt basilíkuolíu sem er gerð úr ferskri basilíku sem við ræktum sjálf. Þetta er í raun réttur sem endurspeglar hugmyndafræðina okkar á Sól alveg einstaklega vel.“
Hún nefnir einnig sex rétta matseðil staðarins og segir Jón leggja áherslu á ferskt íslenskt hráefni og gott samband við framleiðendur.
Á Sól gleður fegurðin bæði augu og bragðlauka. Gestir sitja ofan á gróðurhúsinu og sjá ræktunina undir glergólfinu, en uppskeran ratar síðan á diskana. mbl.is/Árni Sæberg
Fólk er tilbúið að leggja leið sína í Hafnarfjörð
Guðrún Auður segir fyrstu árin hafa gengið vel og þau hafi strax fundið fyrir stuðningi Hafnfirðinga og gesta víðar að. Ferðamenn hafi einnig tekið staðnum vel.
„Það sem hefur kannski komið okkur mest á óvart er hvað fólk hefur tekið vel í að fá fínni veitingastað utan miðbæjar Reykjavíkur. Við höfum fundið að fólk er alveg tilbúið að leggja aðeins á sig til að fara út að borða ef það er eitthvað spennandi í boði.“
Henni finnst mikið líf í Hafnarfirði og ástæður til heimsóknar verða sífellt fleiri. Þar nefnir hún sérstaklega menningarlífið og starf Palla í Bæjarbíói.
„Fullkomið kvöld fyrir jólin gæti til dæmis verið að byrja á góðum mat og drykkjum á Sól og fara svo yfir í Bæjarbíó á Jólahólm. Það gerist varla mikið betra!“
Soðinn fiskur og grjónagrautur
Þrátt fyrir að verja stórum hluta dagsins á veitingastað segist Guðrún Auður hafa einfaldan matarsmekk.
„Ég er eiginlega með alveg ótrúlega einfaldan matarsmekk. Uppáhaldsmaturinn minn er sennilega soðinn fiskur, grjónagrautur eða kjöt í karrí!“
Hún tekur því ekki sjálfa sig of hátíðlega þegar kemur að þróun matseðilsins.
„Mitt atkvæði vegur því kannski ekki alltaf þyngst þegar kemur að því að smakka til nýja rétti á Sól, og þá kemur sér vel að vera með frábært starfsfólk sem maður getur treyst á!“
Á barnum hefur hún þó gaman af því að smakka það sem verður til.
„Óáfengur Basil Gimlet á Sól er í algjöru uppáhaldi. Svo hefur Coke Zero auðvitað aldrei klikkað!“
Útsýnið yfir lónið við Hafnarfjarðarhöfn er hluti af umgjörðinni á Sól. mbl.is/Árni Sæberg
Vínkvöld með gesti frá Rhône
Þann 17. nóvember verður vínkvöld á Sól með vínum frá Famille Perrin og verður Maxime Simon frá fyrirtækinu heiðursgestur. Hann mun segja frá vínunum og Rhône-dalnum í Frakklandi.
Guðrún Auður segir teymið hafa valið uppáhaldsrétti sína fyrir kvöldið og fengið Heiðrúnu Mjöll til að aðstoða við vínpörunina.
„Ég er sérstaklega spennt fyrir þessum viðburði. Ég hafði aldrei smakkað neitt þessu líkt. Ótrúlega skemmtilegt vín sem helst vel í hendur við karfacrudo-ið okkar á Sól.“
Súkkulaðimús Jóns yfirkokks
Guðrún Auður deilir hér uppskrift að súkkulaðimús Jóns yfirkokks sem hún segir hafa notið vinsælda á Sól.
- 285 g mjólk
- 10 g matarlím
- 400 g súkkulaði
- 666 g hálfþeyttur rjómi
Aðferð
- Leggið matarlímið í bleyti og hitið mjólkina að suðu.
- Þegar mjólkin er komin að suðu er matarlímið sett út í og það leyst upp.
- Hellið mjólkinni yfir súkkulaðið og hrærið.
- Látið súkkulaðiblönduna kólna niður fyrir stofuhita áður en rjómanum er blandað saman við.
- Hellið rjómanum varlega út í og hrærið varlega með sleikju.
- Setjið blönduna í ílát og geymið í kæli í minnst 4 klst.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/51/7/1510713.jpg)




