Leyndarmálið á bak við förðun Ingu Sæland
Inga Sæland var glæsilega förðuð í myndatökunni. Fatnaðurinn er frá Andreu í Hafnarfirði og skartið frá Michelsen. mbl.is/Karítas
Dýrleif Sveinsdóttir förðunarfræðingurinn farðaði Ingu Sæland fyrir Smartland á dögunum þegar hún prýddi forsíðu tímarit lífstílsvefsins.
„Ég legg alltaf mikla áherslu á undirbúning húðarinnar og notaði þar vörur frá japanska merkinu Shiseido. Í fyrsta skrefi notaði ég Eudermine Essence, rakagefandi essence-vatn sem ég bar á með bómull og strauk yfir andlitið. Það bæði hreinsar yfirborð húðarinnar um leið og það fyllir hana af raka og undirbýr fyrir næstu skref. Því næst notaði ég Ultimune Power Infusing Serum, margverðlaunað serum sem er þekkt fyrir að styrkja húðina og efla náttúrulegan ljóma hennar. Að lokum setti ég Vital Perfection-andlitskrem og Vital Perfection-augnkrem, sem hjálpa til við að þétta, slétta og gefa húðinni lyftingu. Með þessum fjórum skrefum var húðin orðin ljómandi, vel nærð og fullkomlega tilbúin fyrir förðunina,“ segir Dýrleif.
Dýrleif notaði Revitalessence Skin Glow Foundation-farðann frá Shiseido en hann er léttur og færir húðinni mikinn ljóma án þess að fela náttúrulega áferð hennar. Á þau svæði sem þurftu meiri þekju notaði hún örlítið af Clarins Skin Illusion All-in-One Concealer undir augun, á milli augabrúna, í kringum nefið og undir kinnbeinin til að lýsa andlitið upp og skerpa skyggingu undir kinnbeini. „Til að móta andlitið notaði ég Clarins Summer Bronzer. Að lokum, til að festa förðunina og tryggja fallega endingu, valdi ég Revitalessence Loose Powder Matte frá Shiseido,“ segir Dýrleif.
Hvaða augnskugga notaðir þú?
„Ég notaði Guerlain-augnskuggapallettu í mjúkum jarðtónum sem opnuðu augnsvæðið og sköpuðu fallega dýpt. Ég rammaði augnlínuna inn með brúnum Guerlain-augnblýanti og dýpkaði síðan augnförðunina með Shiseido Microliner Ink í svörtu. Með því að setja svartan blýant í efri vatnslínuna tengjast augnhárin betur augnförðuninni og fá aukna fyllingu við rótina, sem skapar fallegan ramma utan um augun. Að lokum gaf Clarins Supra Lift & Curl XXL-maskarinn augnhárunum lengd, lyftingu og fyllingu.“
Dýrleif undirbjó varirnar vel áður en hún setti varalitinn sjálfan á og setti KissKiss Bee Lift Primer frá Guerlain á þær.
„Ég mótaði síðan varirnar með Guerlain-varablýanti númer 01 áður en ég bar á Guerlain KissKiss Blur Matte-varalit í litnum 335, sem gaf vörunum fallegan ljósbleikan blæ með mjúkri mattri áferð,“ segir Dýrleif og er ánægð með útkomuna.
„Útkoman var ljómandi, fáguð og glæsileg förðun sem undirstrikaði sterka útgeislun Ingu Sæland,“ sagði hún.
Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni hér fyrir neðan:
Hér er Inga með gleraugu frá Optical Studio. Eyrnalokkarnir eru Gucci og fást í Michelsen og dragtin er frá Andreu í Hafnarfirði eins og skyrtan. mbl.is/Karítas
Það var ekki hægt að fá Ingu Sæland í myndatöku nema fá hana til að setja upp flott sólgleraugu. Þessi eru frá Optical Studio. mbl.is/Karítas
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗






