Óttar Guðmundsson skrifar: Streitutímar

Nú líður jólum með tilheyrandi væntingum, spennu og frammistöðukvíða. Streita er landlæg en fer með himinskautum á þessum árstíma. Hugurinn leitar til Gísla sögu Súrssonar en Gísli var einn frægasti útlagi í samanlögðum Íslendingasögum. Hann var dæmdur til útlegðar fyrir svívirðilegt morð sem hann framdi einmitt í stresskasti eftir erfitt jólaboð. Óvinir hans eltu hann en lengi vel tókst honum að sleppa á undraverðan hátt. Einhverju sinni var hann í Hergilsey á Breiðafirði. Fjandmenn hans komu aðvífandi en honum tókst að flýja með því að þykjast vera Helgi sonur bóndans sem kallaður var Ingjaldsfíflið. Gísli lék drenginn meðan óvinir sigldu fram hjá gráir fyrir járnum.

Í þessu atviki er Gísli í bráðri lífshættu og undir hámarks streituálagi. Líkami hans svarar og framleiðir alls konar hormóna sem búa hann undir átök sem kallast flótta- og bardagasvörun. Heilastofninn sendir boð til heiladinguls sem sendir nýrnahettum skeyti. Kortisól hækkar, adrenalín eykst sem og framleiðsla annarra hormóna. Þetta viðbragð er jafngamalt mannkyni frá þeim tíma þegar maðurinn var stöðugt umkringdur hættum. Viðbragðið herðir á hjartanu, veitir meira blóði til vöðva og heila en dregur úr starfsemi annarra líffæra. Í háska sem þessum getur svefn og melting beðið og kynhvötin minnkar.

Venjulegur Íslendingur lendir ekki lengur daglega í lífshættu eins og Gísli en hann er undir gífurlegu álagi. Hann þarf að skutlast útum allan bæ í erfiðri umferð, mæta á fundum, komast til vinnu og svara endalausum tölvupóstum. Kröfurnar eru miklar og síminn er harður húsbóndi. Streitan er á háu stigi þótt enginn óvinaher sé á eftir mönnum. En líkaminn veit það ekki. Hann svarar eins og hann gerði á tímum Gísla og kó með kortisóli og adrenalíni. Streituviðbragðið einkennist auknum hjartslætti, svita í lófum, meltingarörðugleikum, svefntruflunum og getuleysi. Í langvinnu streituástandi verða þessi einkenni viðvarandi. Þetta er algengt í kringum jólin þegar allt á að vera fullkomið.

Viðbrögð líkamans eru því kolröng þegar hann býr stressaðan bankamann undir hörð vopnaviðskipti á hverjum degi. Útkoman er fyrirsjáanleg. Fólk situr hjá sálfræðingum og læknum og lýsir erfiðum líkamlegum einkennum sem rekja má til álagsins. Lyfjaiðnaðurinn keppist við að framleiða lyf sem gera þessi einkenni bærileg. Öll streitan hjá Gísla raungerðist í lokaþættinum þegar hann var drepinn. Venjulegt fólk býr á hinn bóginn við krónískt streituástand um árabil með meðfylgjandi líkamlegum og andlegum einkennum. Orsökina má rekja til aldagamalla viðbragða sem henta nútímamanninum engan veginn.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅