Vilhelm rak frá bryggju: Landfestar slitnuðu
Bryggjupolli brotnaði og Vilhelm Þorsteinsson EA-11 rak frá bryggju. Samsett mynd/Sigurður Stefán Baldvinsson
Uppsjávarskip Samherja, Vilhelm Þorsteinsson EA-11, losnaði frá bryggju á Krossanesi á Akureyri í óveðrinu í kvöld.
Þetta staðfestir Baldvin Þorsteinsson forstjóri Samherja.
Af upplýsingum á sjóvöktunarforriti að dæma kom dráttarbáturinn Seifur skipinu til aðstoðar.
Bryggjupollinn brotnaði af
„Pollinn á bryggjunni, það er það sem landfestarnar eru bundnar við, virðist hafa brotnað af og við það hafi landfestarnar flestar en ekki allar slitnað,“ segir Baldvin í samtali við mbl.is.
Þá segir hann mikla lukku að landfestar á fremri enda skipsins hafi ekki slitnað.
Skipið hafi við þetta rekið frá bryggju en tekist hafi að ferja áhafnarmeðlimi um borð sem ræstu vélar skipsins og náðu stjórn á aðstæðunum. Er skipið nú á leið að Oddeyrarbryggju.
Baldvin segir að ekki sé að sjá skemmdir á skipinu að svo stöddu en til standi að skoða það betur þegar veður fer að lægja.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/22/1692259.jpg)
