Hefur áhrif á Icelandair

Ástandið í Bandaríkjunum hefur áhrif á flugferðir Icelandair.

Ástandið í Bandaríkjunum hefur áhrif á flugferðir Icelandair. mbl.is/Árni Sæberg

Stöðvun flugumferðar um öll Bandaríkin hefur áhrif á leiðarkerfi Icelandair. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef flugfélagsins. 

Þar segir að stöðvunin valdi töfum og truflunum.

Bandaríska flugmálastjórnin (FAA) stöðvaði alla flugumferð í Bandaríkjunum í kvöld vegna alvarlegra bilana í fjarskiptakerfum flugumferðarstjórnar.

Skömmu áður en ákvörðunin var tilkynnt hafði flugmálastjórnin stöðvað flugtak í Chicago vegna fjarskiptaörðugleika hjá flugumferðarstjórn. Alþjóðaflug verður metið í hverju tilviki fyrir sig. 

Áttir þú flug frá Bandaríkjunum sem hefur verið aflýst eða frestað? Situr þú fastur á flugvelli í Bandaríkjunum? Hafðu samband á [email protected].

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅