Foktjón og skip losnaði frá bryggju
Nokkuð hefur verið um verkefni hjá lögreglunni á Norðurlandi vegna óveðursins sem gengur nú yfir landið.
Skip losnaði frá bryggju á Akureyri og foktjón hefur orðið á húsum í Ólafsfirði og á Dalvík.
Engar tilkynningar hafa þó borist um slys á fólki.
Á leið að bryggju fyrir eigin vélarafli
Hermann Karlsson, aðalvarðstjóri lögreglunnar á Norðurlandi eystra, segir í samtali við mbl.is að stærsta verkefni lögreglu hafi verið á Akureyri þar sem skip losnaði frá bryggju.
Þá segir hann hafa tekist að koma áhafnarmeðlim um borð og sé skipið nú á leið að bryggju fyrir eigin vélarafli.
Hann segir tjón hafa orðið á tveimur íbúðarhúsum á Ólafsfirði. Rúða brotnaði í öðru þeirra og kom lögregla íbúum til aðstoðar. Þak losnaði á hinu húsinu, sem er óbyggt.
Í samræmi við spár
Pétur Björnsson, yfirlögregluþjónn Norðurlands vestra, segir í samtali við mbl.is að búið sé að hreinsa vegi af bílum og fólki. Þjóðvegi 1 um Blönduós var lokað vegna fastra bíla.
Engar tilkynningar hafa borist um skemmdir á húsum þar.
Óli Þór Árnason, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir í samtali við mbl.is að veðrið gangi á land í samræmi við spár.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗