Inga svaraði ekki spurningum á fundi

Margrét Lilja Pálsdóttir aðstoðarskólastjóri Skarðshlíðarskóla og Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra. Samsett mynd/Aðsend/mbl.is/Eyþór

Aðstoðarskólastjóri segist ekki hafa fengið svar við spurningu sinni um hvernig tryggja eigi jafnræði nemenda við innleiðingu nýs námsmats, þrátt fyrir að hafa ítrekað hana við Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra á opnum fundi í vikunni.

Þetta kemur fram í Facebook-færslu Margrétar Lilju Pálsdóttur, aðstoðarskólastjóra Skarðshlíðarskóla. 

Tilefni færslunnar eru spurningar sem hún segir enn ósvaraðar eftir að nýr einkunnakvarði í aðalnámskrá grunnskóla var staðfestur. Nýi kvarðinn felur í sér að nemendur í 10. bekk fái lokaeinkunnir í tölum í stað bókstafa við útskrift í vor.

Ekki tveggja manna tal

Samkvæmt Margréti eiga skólar sjálfir að ákveða vægi einstakra hæfniþátta í lokaeinkunn og því gæti sambærileg frammistaða nemenda skilað 6 í einkunn í einum skóla og 7 í öðrum.

Sem dæmi nefnir hún að ritun og lesskilningur geti vegið misþungt á milli skóla. Slíkur munur gæti haft áhrif á hvaða áfanga nemendur þurfi að taka í framhaldsskóla.

Margrét segir Ingu hafa rætt niðurstöður PISA, lesskilning og aukið fjármagn til námsgagnagerðar í svari sínu en ekki svarað því hvernig tryggja eigi jafnræði nemenda. Hún kveðst fagna umræðu um þau mál en segir spurningu sína engu að síður enn ósvaraða.

„Þegar ég bað aftur um svar sagði ráðherra ákveðið að þetta væri ekki tveggja manna tal og að nú væri hún að tala. Þar lauk samtalinu og spurningunni minni var enn ósvarað,“ skrifar Margrét í færslunni.

„Að mínu mati er alls ekki tímabært að fara í þetta eins og þetta er núna,“ segir Margrét í samtali við mbl.is og kallar eftir víðtækara samtali svo að sameiginlegur skilningur náist. 

„Markmið þessara breytinga er að hafa samræmi á milli skóla en það er ekki að gerast með þessu.“

Ekki mótfallin breytingum 

Margrét segir kennara og skólastjórnendur ekki vera mótfallna breytingum en harmar hvernig staðið sé að innleiðingu þeirra. 

„Þetta snýst ekki um að kennarasamfélagið og skólastjórnendur séu ekki tilbúnir í þetta samtal og vilji ekki fara í breytingar á menntakerfinu,“ segir hún í samtali við mbl.is og telur of snemmt að innleiða breytingarnar með núverandi fyrirkomulagi.

„Ég er alveg til í tölurnar. Ég er til í breytingar og sammála því að við þurfum að skoða menntakerfið okkar með gagnrýnum augum.“

Kallar eftir niðurstöðum annarra spurninga

Margrét kallar jafnframt eftir því að ráðuneytið birti spurningalistann og allar niðurstöður könnunar sem lögð var fyrir innleiðingarteymi skólanna. Hún segist sjálf hafa tekið þátt í könnuninni og að þar hafi verið spurt um mun fleiri atriði en þau sem fram koma í fréttatilkynningu ráðuneytisins.

Í tilkynningunni séu aðeins birtar niðurstöður tveggja spurninga, annars vegar um gagnsemi funda Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu (MMS) og hins vegar um hversu vel svarendur telji sig skilja nýja einkunnakvarðann. Margrét vill að niðurstöður annarra spurninga verði einnig gerðar opinberar.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅