Sjá hvar vikið er frá eigin reglum
Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Ahead hefur gefið út nýja aðferð í viðskiptagreind sem heitir Declaratavie-Imperative Graph eða DIG.
Útgáfan er unnin í samstarfi við tæknifyrirtækið Neo4j.
Eins og fram kemur í fréttatilkynningu tekur DIG við af hefðbundinni ferlagreiningu (e. process mining), sem fyrirtæki hafa notað í tvo áratugi til að sjá hvernig ferlar fara fram í raun.
„Ferlagreining segir hvað gerðist. Þekkingarlíkön segja hvað það þýðir. Þessu tvennu hefur verið haldið aðskildu í tuttugu ár og fyrirtæki borga fyrir það með handavinnu og svörum sem koma of seint. DIG heldur utan um hvort tveggja á einum stað. Fyrirtæki sér hvar það víkur frá eigin reglum og bregst við á meðan enn er ódýrt að laga það. Þetta er ferlagreining 2.0. Við byggðum DIG á Neo4j vegna þess að þar búa reglur, gögn og tengslin á milli þeirra saman á einum stað," segir Ragnar Láki Jónsson, meðstofnandi og tæknistjóri Ahead í tilkynningunni.
Leiðandi í gagnagrunnum
Í tilkynningunni er Neo4j sagt vera leiðandi á heimsvísu í gagnagrunnum sem geyma tengsl milli gagna (e. graph databases). 84 af 100 stærstu fyrirtækjum Bandaríkjanna nota tækni félagsins og meira en helmingur fyrirtækja á Fortune 500 listanum samkvæmt tilkynningunni.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗