„Þetta er ekki annar 11. september“

Vélar í biðstöðu á O'Hare-flugvelli í Chicago.

Vélar í biðstöðu á O'Hare-flugvelli í Chicago. AFP/Kamil Krzaczynski

Markwayne Mullin, heimavarnaráðherra Bandaríkjanna, segir ekkert benda til þess að árás hafi valdið fjarskiptabiluninni sem varð til þess að bandaríska flugmálastjórnin (FAA) stöðvaði öll flugtök í landinu í dag. Ekki sé þó hægt að útiloka netárás að svo stöddu.

Mullin ræddi við blaðamenn við Hvíta húsið eftir fund með Donald Trump Bandaríkjaforseta.

„Það bendir ekkert til þess enn sem komið er að um illviljaða árás gegn okkur hafi verið að ræða. Eins og staðan er núna er þetta einfaldlega fjarskiptabilun,“ sagði Mullin.

Hann lagði jafnframt áherslu á að ekkert benti til þess að um hryðjuverkaárás væri að ræða.

„Þetta er ekki annar 11. september. Ég get ekki ítrekað það nógu oft.“

Markwayne Mullin.

Markwayne Mullin. AFP/Kent Nishimura

Útiloka ekki netárás

Mullin sagði yfirvöld enn rannsaka orsök bilunarinnar og að ekkert væri útilokað, þar á meðal möguleg netárás.

Hann taldi þó enga ástæðu til að tengja bilunina við umfangsmikla truflun í kerfum Microsoft sem hefur haft áhrif á opinbera þjónustu víða um heim.

Að sögn ráðherrans hefur verið gerð grein fyrir öllum flugvélum og verður tekið á móti millilandaflugi eftir mati á aðstæðum hverju sinni.

Hann varaði jafnframt við því að það gæti tekið nokkurn tíma að koma flugumferð í eðlilegt horf.

„Þetta verður ekki leyst á einni klukkustund,“ sagði Mullin.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅