Margrét finnur engan lögmann sem vill taka mál hennar að sér - Segjast óttast „skrímslið“
Ritstjórn DV
Föstudaginn 13. nóvember 2026 23:00
Margrét Friðriksdóttir rétt fyrir aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjaness. Mynd: DV/KSJ
Ritstjóri Fréttarinnar, Margrét Friðriksdóttir, er í vanda stödd en henni hefur reynst erfitt að finna lögmann sem er tilbúinn að aðstoða hana við að kæra yfirvöld til Mannréttindadómstóls Evrópu vegna meintra brota á tjáningarfrelsi og rétti hennar til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi. Frá þessu greinir Margrét í Facebook-færslu.
Margrét var í sumar sakfelld í Héraðsdómi Reykjaness fyrir meiðyrði gegn Barböru Björnsdóttur héraðsdómara, en Margrét kallaði dómarann meðal annars „lausláta mellu“ og sakaði hana um fölsun vitnisburðar, misnotkun dómsvalds og hjúskaparbrot. Var Margréti gert að greiða 200 þúsund króna sekt í ríkissjóð.
Sjá einnig: Dómur fallinn yfir Margréti – Ákærð fyrir ærumeiðingar í garð Barböru héraðsdómara
Reyndi Margrét að áfrýja málinu til Landsréttar, en dómurinn neitaði að taka málið fyrir með vísan til þess að ekki þættu líkur á því að niðurstöðu héraðsdóms yrði hnekkt svo nokkru nemi og þóttu úrslitin hvorki varða mikilvæga hagsmuni Margrétar sjálfrar né að málið hefði verulegt almennt gildi.
Margrét hefur því ákveðið að snúa sér að Mannréttindadómstól Evrópu en til þess þarf hún lögmann og slíkan hefur henni ekki tekist að finna.
„Undanfarið hef ég leitað til nokkurra lögmanna vegna fyrirhugaðrar kæru minnar til Mannréttindadómstóls Evrópu, án þess að nokkur þeirra hafi tekið að sér formlega fyrirsvarsmennsku í málinu.“
Segir Margrét að hér séu mikilvæg réttindi í húfi og telur hún alvarlegt hversu erfitt hefur reynst að fá lögfræðilega aðstoð. Hún ætlar nú að leita út fyrir landsteinana.
„Ég tel það alvarlegt hversu erfitt hefur reynst að afla lögfræðilegrar aðstoðar við að bera mál mitt undir alþjóðlegan mannréttindadómstól.
Ég mun því halda áfram undirbúningi kærunnar sjálf og leita jafnframt eftir aðstoð lögmanna utan Íslands.
Ég tel mikilvægt að einstaklingar hafi raunhæfan möguleika á að láta reyna á réttindi sín gagnvart stjórnvöldum, óháð því hversu umfangsmikil eða viðkvæm mál þeirra eru.
Rétturinn til réttlátrar málsmeðferðar og tjáningarfrelsis á að gilda um alla“
Margrét er spurð í athugasemd hvers vegna enginn íslenskur lögmaður sé tilbúinn að taka málið að sér. Margrét segir þá bera því við „að það myndi hafa slæmar afleiðingar fyrir þá, og taka ekki áhættuna að fá „skrímslið“ eins og einn orðaði það á eftir sér, og þá á hann við íslenska ríkið“
Gerir Margrét athugasemd við það að lögmenn bíði í röðum eftir því að fá að verja „morðingja eða barnaníðinga“ en neiti að verja konu sem hafi verið neitað um réttláta málsmeðferð.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗