Mun meira í gangi á alþjóðasviðinu
Bergdís Ellertsdóttir á alþjóðlegu kaupstefnunni í Sjanghaí (CIIE) á fimmtudag í síðustu viku. mbl.is/Baldur
Bergdís Ellertsdóttir hefur haft í nógu að snúast síðan hún tók við sem sendiherra Íslands í Kína í ágúst síðastliðnum af Þóri Ibsen. Ber þar hæst nýlega heimsókn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra til Kína, sem sagt var frá í Morgunblaðinu.
Blaðamaður ræddi við Bergdísi í Sjanghaí á fimmtudag í síðustu viku áður en leiðin lá á tónleika Víkings Heiðars Ólafssonar í Shanghai Oriental Art Center um kvöldið. Hafði Bergdís þá tekið þátt í fjölbreyttri dagskrá í Sjanghaí en vikuna áður fylgdi hún ráðherra í Peking og í hafnarborginni Qingdao, sem er miðja vegu á milli Peking og Sjanghaí. Heimsókn Þorgerðar Katrínar bar upp aðeins rétt rúmlega ári eftir að Halla Tómasdóttir forseti Íslands kom í opinbera heimsókn til Kína í tilefni af 30 ára afmæli Peking-yfirlýsingarinnar og fundaði með Xi Jinping forseta Kína.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗