Fordæmalaus og svívirðileg árás
Jonathan McEvoy skrifaði ummælin um Charles Leclerc eftir árekstur við Lewis Hamilton. AFP/Alfredo Estrella
Alþjóðaakstursíþróttasambandið FIA, sem fer með stjórn Formúlu 1, hefur svipt Jonathan McEvoy, blaðamann Daily Mail, fjölmiðlaaðgangi að keppnum það sem eftir er tímabilsins.
Ákvörðunin er tekin í ljósi þess að McEvoy kallaði Charles Leclerc, ökumann Ferrari, „lúmskan lítinn skíthæl“, að því er The Athletic greinir frá.
Pistillinn birtist í kjölfar áreksturs Leclercs við liðsfélaga sinn hjá Ferrari, Lewis Hamilton, í mexíkóska kappakstrinum.
McEvoy mun missa af síðustu þremur keppnunum, þótt annar blaðamaður geti verið fulltrúi blaðsins.
FIA sagði að greinin hefði ekki staðist þær faglegu kröfur sem gerðar eru til blaðamanna sem fá að sækja keppnir.
„Þetta er fordæmalaus og svívirðileg árás á fjölmiðlafrelsi,“ sagði Chris Dean, íþróttaritstjóri Daily Mail, í samtali við The Athletic. McEvoy lýsti ummælum sínum sem „léttúðlegum“.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗