Aron Einar: „Ég hef þurft að þjást mikið“

Aron Einar Gunnarsson í leiknum í kvöld.

Aron Einar Gunnarsson í leiknum í kvöld. Ljósmynd/Alex Nicodim

„Þetta var fagmannlega að verki staðið,“ sagði Aron Einar Gunnarsson, leikmaður íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, í samtali við Sýn Sport eftir stórsigur íslenska liðsins gegn Búlgaríu í 4. riðli C-deildar Þjóðadeildarinnar í Plodiv í Búlgaríu í kvöld.

Leiknum lauk með 5:0-sigri Íslands en Andri Lucas Guðjohnsen gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í leiknum.

Fjaraði undan Búlgurunum

„Okkur datt það í hug að þeir myndu koma af krafti inn í leikinn eftir sigur gegn Lúxemborg, 2:1, í síðasta leik sínum. Það varð raunin og mér fannst þeir kraftmiklir fyrstu tíu mínútur leiksins en um leið og við náðum ró á boltann og flæði í okkar leik fannst mér fjara undan þessu hjá þeim.

Við riðum á vaðið og við erum að vinna í því að læra að kæfa svona leiki og við gerðum það í dag. Þetta var virkilega fagmannleg frammistaða. Við fengum fullt af færum sóknarlega og fá færi á okkur þannig að þetta var í raun fullkominn leikur en andstæðingurinn bauð okkur líka upp á það að spila svona fótbolta,“ sagði Aron Einar.

Nýtur þess að vera í augnablikinu

Aron Einar lék sinn 112. A-landsleik í kvöld og er nú einum leik frá því að jafna landsleikjamet Birkis Bjarnasonar.

„Tilfinningarnar eru góðar og ég er bara að reyna að taka allt inn. Ég er að njóta þess að vera í augnablikinu og þakklátur fyrir það að vera enn þá í landsliðinu. Ég er búinn að vera í landsliðinu í 18 ár sem er langur tími. Þetta eru miklar fórnir sem ég hef þurft að færa og ég hef þurft að þjást.

Fjölskyldan mín veit manna best hvað ég hef gengið í gegnum. Það eru miklar tilfinningar í gangi en verkefnið er hálfnað og það er verðugt verkefni fram undan á Laugardalsvelli. Þetta lið þarf að taka næsta skref þegar kemur að því að loka leikjum og einhverjir tala um að þetta sé bara C-deildin en þú þarft samt að loka þeim leikjum líka og það ætlum við að gera á mánudaginn,“ sagði Aron Einar í samtali við Sýn Sport.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅