Andri kominn fram fyrir Orra sem var svekktur

Arnar Gunnlaugsson í Búlgaríu í kvöld.

Arnar Gunnlaugsson í Búlgaríu í kvöld. Ljósmynd/Alex Nicodim

„Þetta var bara góð frammistaða. Það er ekki oft sem við vinnum 5:0 á útivelli,“ sagði Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, í samtali við Sýn Sport eftir stórsigur Íslands á Búlgaríu í Þjóðadeildinni í kvöld.

Ísland getur nú tryggt sér efsta sæti riðilsins og sæti í B-deild með sigri á Lúxemborg á Laugardalsvelli á mánudaginn. Arnar var ánægður með undirbúninginn og framlag alls hópsins í Búlgaríu.

„Við vorum alveg tilbúnir eftir góða æfingaviku. Menn voru hungraðir og það var kraftur í liðinu. Svo vill maður náttúrulega vera gráðugur, skora fleiri mörk og gera færri mistök.

Heilt yfir er ég virkilega ánægður með framlag strákanna í dag og alls hópsins, líka þeirra sem stóðu fyrir utan. Maður fann það einhvern veginn í aðdraganda leiksins að þetta yrði gott kvöld.“

Arnar taldi þriðja mark íslenska liðsins hafa ráðið úrslitum.

Orri Steinn Óskarsson fagnar marki sínu.

Orri Steinn Óskarsson fagnar marki sínu. Ljósmynd/Alex Nicodim

„Búlgararnir eru ekki alveg á toppnum eins og þeir voru í gamla daga en þeir eru svo sem ekkert langt frá okkur á heimslistanum. Þetta er svo spurning um að skora fyrsta markið og helst fyrstu tvö, því þá eiga þeir til að gefast aðeins upp.

Þriðja markið var mikilvægast. Það drap leikinn og um leið og við fengum það varð eftirleikurinn auðveldari. Heilt yfir getum við ekki kvartað yfir 5:0-sigri.“

Hann hrósaði framherjunum Andra Lucas Guðjohnsen og Orra Steini Óskarssyni fyrir framlag þeirra á báðum endum vallarins. Orri spilaði fyrri hálfleikinn og skoraði eitt mark. Andri lék allan leikinn og skoraði þrjú.

„Orri fyrirliði var mjög svekktur yfir því að Andri skyldi vera kominn fram fyrir hann í markaskorun. Þeir tveir eru náttúrulega öflugt framherjapar og vinna líka vel fyrir liðið. Maður má ekki gleyma því að Andri Lucas og Orri eru frábærir varnarlega og í pressunni.“

Meiðsli og leikbönn settu þó strik í reikninginn hjá íslenska liðinu. Stefán Teitur Þórðarson þurfti að fara af velli og Hörður Björgvin Magnússon kom inn á í hans stað.

Andri Lucas Guðjohnsen tekur vítaspyrnu.

Andri Lucas Guðjohnsen tekur vítaspyrnu. Ljósmynd/Alex Nicodim

„Þetta var því miður skammgóður vermir fyrir Stefán Teit. En Hörður kom inn og var ótrúlega flottur. Það er erfitt að koma inn við svona aðstæður en hann var með fullan fókus. Þegar Hörður Björgvin er með fullan fókus er hann toppvarnarmaður.

Við þurfum að skoða hvort við getum kallað inn einhverja leikmenn því það bíður okkar ærið verkefni. Meiðsli og leikbönn eru eini svarti bletturinn á kvöldinu,“ sagði Arnar sem er spenntur fyrir leiknum á mánudag.

Draumastaðan okkar var að fá úrslitaleik á Laugardalsvelli í nóvember í flóðljósum. Við fengum hann.“

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅