Trump hrósar nýkjörnum þingmanni demókrata í Mississippi fyrir sniðugt útspil - „Ég verð að hrósa honum“

Sigurganga Demókrataflokksins hélt áfram í vikunni þegar þeir bættu við sig öldungadeildarþingmanni þegar ljóst varð að Scott Colom hefði haft betur gegn þingmanni Repúblikanaflokksins, Cindy Hyde-Smith, sem sóttist eftir endurkjöri. Mississippi höfðu ekki kosið demókrata í öldungadeildina frá árinu 1982. Colom bætist nú í hóp svartra þingmanna ríkisins, en þó sá fyrsti til að hljóta sætið með almennri kosningu. Forverar hans tveir voru skipaðir í þingið en sá síðar tók sæti fyrir um 150 árum.

Litlu mátti þó muna. Munurinn á milli frambjóðendanna var um tíma örfá atkvæði. Talningin tók mikinn tíma enda varð fljótt ljóst að hvert atkvæði skipti máli og að vanda þyrfti til verka.

Engan óraði fyrir þessum sigri en fyrir kjördag voru sigurlíkur Coloms um 9% í kosningaspám.

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur nú brugðist við þessum vendingum en hann sagði í gær um nýkjörna þingmanninn:

„Ég þekki manninn ekki, en ég verð að hrósa honum. Ég hélt kosningafund þarna þar sem raðirnar voru 16 kílómetra langar og hann háði sína baráttu í þeirri röð – hann sagði öllum í röðinni hvað hann hefði staðið sig vel. Ég get ekki annað en hrósað honum fyrir það.“

Trump er þarna að vísa til myndbands úr herbúðum Coloms en það var tekið upp á kosningafundi forsetans í Mississippi í aðdraganda þingkosninganna. Þar gekk Colom upp að kjósendum sem biðu í röð eftir að komast inn á fund forsetans og spurði hvað lægi þeim á hjarta. Nefndu kjósendur meðal annars verðhækkanir, stríðið í Íran og tollastríð forsetans við erlendar þjóðir. Myndbandið vakti mikla athygli.

Þetta er líka ákveðinn siðferðislegur sigur nýkjörna þingmannsins. Árið 2023 kom Hyde-Smith í veg fyrir að Colom yrði skipaður í embætti dómara. Nú, þremur árum síðar, er Colom búinn að ræna hana þingsætinu.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅