Fjöldi vega lokaður vegna veðurs
Lokað hefur verið fyrir umferð um Öxnadalsheiði og ekki er útlit fyrir að opnað verði aftur fyrir umferð fyrr en á morgun. Einnig er lokað fyrir umferð um veginn milli Blönduóss og Varmahlíðar.
Þá er lokað fyrir umferð um Holtavörðuheiði og Bröttubrekku,
Mikið hríðarveður gengur nú yfir landið og eru fleiri vegir á óvissustigi. Þar á meðal eru Siglufjarðarvegur og Ólafsfjarðarmúli vegna snjóflóðahættu.
Appelsínugular veðurviðvaranir eru í gildi á Norðurlandi vestra og eystra, Austurlandi, Austfjörðum og Suðausturlandi.
Gular viðvaranir eru í gildi á Vestfjörðum, Breiðafirði, Faxaflóa og miðhálendinu.
Á Vestfjörðum hefur verið lokað fyrir umferð um Súðavíkurhlíð vegna snjóflóðahættu.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗