Bláa lónið: Milljarðs umframeftirspurn

Alls bárust tæplega fjögur þúsund áskriftir að hlutum í almennu hlutafjárútboði Bláa Lónsins, að andvirði um 15,3 milljarða króna. Útboðinu lauk klukkan 16 í dag og nam heildarsöluandvirði þess tæpum 14,3 milljörðum króna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bláa Lóninu.

Alls voru seldar 150 milljónir hluta í útboðinu á genginu 95 krónur á hlut. Eftirspurn var því um einum milljarði króna meiri en framboðið og voru áskriftir skertar í samræmi við skilmála útboðsins.

Stefnt að skráningu í Kauphöllina 20. nóvember

Fjárfestum verður tilkynnt um úthlutun eigi síðar en 16. nóvember og er gjalddagi áskriftarloforða 18. nóvember.

Stefnt er að því að viðskipti með hlutabréf Bláa Lónsins hefjist á aðalmarkaði Kauphallar Íslands 20. nóvember. Nasdaq Iceland hefur samþykkt umsókn félagsins um skráningu með fyrirvara um að skilyrði um dreifingu hlutafjár verði uppfyllt.

Útistandandi hlutir Bláa Lónsins í kjölfar útboðs nema 1.024.763.489 hlutum. Með kaupunum á ferðaþjónustufyrirtækinu Arctic adventures mun hlutum fjölga enn frekar og verða þeir 1.296 milljónir þegar kaupin ganga endanlega í gegn.

„Þetta eru stór tímamót fyrir Bláa Lónið, íslenska ferðaþjónustu og fyrir Kauphöllina,“ er haft eftir Grími Sæmundsen, stofnanda og stjórnarformanni Bláa lónsins í tilkynningunni. 

Hann segir sérstaklega ánægjulegt hversu margir Íslendingar vilji eignast hlut í félaginu.

Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins, þakkar fjárfestum traustið og segir félagið horfa til frekari uppbyggingar.

„Við höfum skýra sýn á uppbygginguna fram undan: að þróa upplifanir um land allt og leiða áfram þá uppbyggingu sem staðsetur Ísland sem einn fremsta upplifunar- og vellíðunaráfangastað heims,“ er haft eftir henni.

Landsbankinn og Fossar fjárfestingarbanki höfðu umsjón með útboðinu.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅