Fjöldi vega lokaður vegna veðurs

Mikið hríðarveður gengur nú yfir landið.

Mikið hríðarveður gengur nú yfir landið. Kort/Vegagerðin

Lokað hefur verið fyrir umferð um Öxnadalsheiði og ekki er útlit fyrir að opnað verði aftur fyrir umferð fyrr en á morgun. Einnig er lokað fyrir umferð um veginn milli Blönduóss og Varmahlíðar. 

Þá er lokað fyrir umferð um Holtavörðuheiði og Bröttubrekku, 

Mikið hríðarveður gengur nú yfir landið og eru fleiri vegir á óvissustigi. Þar á meðal eru Siglufjarðarvegur og Ólafsfjarðarmúli vegna snjóflóðahættu. 

Appelsínugular veðurviðvaranir eru í gildi á Norðurlandi vestra og eystra, Austurlandi, Austfjörðum og Suðausturlandi. 

Gular viðvaranir eru í gildi á Vestfjörðum, Breiðafirði, Faxaflóa og miðhálendinu. 

Á Vestfjörðum hefur verið lokað fyrir umferð um Súðavíkurhlíð vegna snjóflóðahættu.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅