Andri Lucas kampakátur eftir þrennu - Tímaspursmál hvenær hann nær pabba sínum

Helgi Fannar Sigurðsson

Föstudaginn 13. nóvember 2026 22:01

Andri Lucas Gudjohnsen og leikmenn fagna. Mynd DV/KSJ

„Þetta var geggjaður leikur. Ánægður með að skora mín þrjú mörk og vinna 5-0. Halda hreinu. Þetta verður ekki mikið betra en þetta,“ sagði Andri Lucas Guðjohnsen við Sýn Sport eftir þrennu og 0-5 sigur Íslands á Búlgaríu í Þjóðadeildinni í kvöld.

Andri Lucas er kominn með 15 landsliðsmörk og vantar aðeins 11 mörk til að ná pabba sínum, Eiði Smára Guðjohnsen, eins og komið var inn á í viðtalinu.

„Það bara kemur í ljós. Vonandi næ ég honum. Þetta var góður leikur í dag til að halda áfram að safna í bankann og vonandi safnast mörkin áfram saman og maður kemst sem fyrst nálægt þessu markameti,“ sagði Andri.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅