Aron Einar einlægur: „Ég hef þurft að þjást mikið, fjölskylda mín veit það best hvað ég hef gengið í gegnum“
Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 13. nóvember 2026 22:09
Aron Einar Gunnarsson / GettyImages
Aron Einar Gunnarsson var einlægur í viðtali við Sýn Sport eftir 0-5 sigur gegn Búlgaríu í Þjóðadeildinni í kvöld.
Þetta var síðasti útileikur Arons með landsliðinu. Hann hefur tilkynnt að hann sé að kveðja landsliðssviðið eftir stórkostlegan feril og verður síðasti leikur hans gegn Lúxemborg á Laugardalsvelli eftir helgi.
„Tilfinningarnar eru góðar, ég er bara að reyna að taka þetta allt inn og vera í augnablikinu,“ sagði Aron við Sýn Sport.
„Ég er þakklátur fyrir að vera enn í þessu landsliði eftir 18 ár. Ég hef þurft að færa fórnir, þjást mikið, fjölskylda mín veit það best hvað ég hef gengið í gegnum.“
Aron mun jafna leikjametið hjá landsliðinu ef hann spilar gegn Lúxemborg en hann getur ekki bætt það þar sem hann kom aðeins við sögu í einum leik í fjögurra leikja landsleikjaglugga í haust.
„Eins og ég hef sagt þá er það þjálfarinn sem ræður. Þið vitið hvernig liðsmaður ég er, ég læt þetta ekki snúast um sjálfan mig og hef aldrei gert,“ sagði Aron um þau mál.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗