Hollendingar léku á als oddi – Serbar fengu tvö rauð
Holland fór afskaplega illa með Grikkland, 7:0, í öðrum riðli A-deildar Þjóðadeildar Evrópu í fótbolta á Johann Cruijff-vellinum í Amsterdam í kvöld.
Holland er í toppsæti riðilsins með ellefu stig en Grikkland er í öðru með átta. Þýskaland kemur síðan í þriðja, einnig með átta, og Serbía er neðst með ekkert.
Tijjani Reijnders fór á kostum í liði Hollendinga og skoraði þrennu í fyrri hálfleik. Jurrien Timber skoraði þá tvennu fyrir Holland og hin mörkin skoruðu Crysencio Summerville og Donyell Malen.
Þýskaland vann þá 3:1-sigur á Serbíu á Rajko Mitic-vellinum í Belgrad.
Florian Wirtz og Brajan Gruda skoruðu fyrir Þýskaland en fyrsta mark liðsins var sjálfsmark. Srdjan Babic skoraði mark Serbíu en Vanja Dragojevic og Andrija Zivkovic fengu rautt spjald.
Þjóðverjar og Hollendingar mætast í Þýskalandi í síðustu umferðinni og Grikkir og Serbar mætast í Grikklandi.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗