Selfoss í fimmta sætið
Selfoss vann sjö marka sigur á Stjörnunni, 29:22, í níundu umferð úrvalsdeildar kvenna í handbolta á Selfossi í kvöld.
Selfoss er komið í fimmta sæti deildarinnar með níu stig eftir sigurinn, jafnmörg og ÍR í sjötta. Stjarnan er aftur á móti í vandræðum en liðið situr í tíunda og neðsta sæti deildarinnar með tvö stig, jafnmörg og HK í níunda.
Selfyssingar voru þremur mörkum yfir í hálfleik, 13:10, og juku forskot sitt í þeim seinni.
Perla Ruth Albertsdóttir fór mikinn fyrir Selfoss en hún skoraði níu mörk. Hulda Hrönn Bragadóttir og Eva Lind Tyrfingsdóttir skoruðu þá sitthvor fimm mörkin. Selma Þóra Jóhannsdóttir varði þá 13 skot og var með 37% markvörslu.
Hjá Stjörnunni skoruðu Sara Rún Gísladóttir, Inga María Roysdóttir og Dora Pajic fjögur mörk hver.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗