Andri Lucas vonast til þess að ná föður sínum
„Þetta var geggjaður leikur og ég er ánægður að hafa skorað þrennu,“ sagði Andri Lucas Guðjohnsen, framherji íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, í samtali við Sýn Sport eftir stórsigur íslenska liðsins gegn Búlgaríu í 4. riðli C-deildar Þjóðadeildarinnar í Plodiv í Búlgaríu í kvöld.
Leiknum lauk með 5:0-sigri Íslands en Andri Lucas gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu eins og áður sagði.
Verður ekki mikið betra
„Við unnum leikinn 5:0, héldum markinu okkar hreinu þannig að þetta verður ekki mikið betra en það. Mér fannst við spila mjög vel og við náðum að halda þeim nánast á þeirra eigin vallarhelmingi stærstan hluta leiksins. Við vorum góðir á boltanum en líka þéttir þegar við þurftum á því að halda.
Við bökkuðum líka á réttum tímapunktum, leyfðum þeim að vera með boltann og gátum þannig nýtt tímann til þess að hvíla okkur. Pressan okkar var mjög góð, við eyddum stærstum hluta leiksins á þeirra vallarhelmingi eins og ég kom inn á áðan og þar vildum við vera í leiknum,“ sagði Andri.
Þarf að koma í ljós
Andri Lucas hefur nú skorað 15 mörk í 44 A-landsleikjum en Eiður Smári Guðjohnsen faðir hans skoraði 26 mörk í 88 A-landsleikjum.
„Ég veit ekki hvenær ég næ honum, það þarf að koma í ljós. Vonandi tekst það og þetta var góður leikur í dag til þess að halda áfram að safna í markabankann. Vonandi heldur maður áfram á sömu braut svo maður komist sem næst markametinu,“ bætti Andri Lucas við í samtali við Sýn Sport.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗