Giftir Bandaríkjamenn stunda sjaldan kynlíf
Er hjónabandið ávísun á minna kynlíf? Nýjar tölur frá Bandaríkjunum benda til þess að stór hluti giftra einstaklinga stundi lítið sem ekkert kynlíf. Sérfræðingar segja þó að hjónabandið sjálft sé ekki vandamálið heldur geti álag hversdagsins, óuppgerð mál og skortur á nánd haft veruleg áhrif á kynlíf para.
Þetta kemur fram á vefsíðu bandaríska tímaritsins Cosmopolitan.
Samkvæmt nýlegri bandarískri rannsókn sem Cosmopolitan vitnar í segjast 32,5% giftra Bandaríkjamanna ekki hafa stundað kynlíf síðustu 12 mánuði. Það þýðir að nærri þriðjungur giftra einstaklinga hefur ekki stundað kynlíf í heilt ár.
Þótt tíðni kynlífs segi ekki alla söguna um gæði sambands vekja niðurstöðurnar spurningar um hvað sé eiginlega að gerast í svefnherbergjum hjóna.
Hvers vegna hætta hjón að stunda kynlíf?
Ilana Grines, löggiltur fjölskyldu- og kynlífsráðgjafi, segir í samtali við Cosmopolitan að ein algengasta skýringin sé einfaldlega þreyta. Þegar vinnudegi lýkur, börnin eru komin í háttinn og heimilisverkunum er lokið sé oft lítil orka eftir fyrir kynlíf.
Álagið sé ekki aðeins líkamlegt heldur einnig andlegt. Þegar hugurinn er stöðugt upptekinn af verkefnalistum, ábyrgð og skipulagningu heimilisins getur reynst erfitt að koma sér í rétta skapið. Kynferðisleg nánd krefjist ákveðins andlegs og tilfinningalegs svigrúms sem sé ekki alltaf til staðar í annasömu fjölskyldulífi.
Grines bendir einnig á að gremja og óuppgerð mál geti haft mikil áhrif á kynhvöt. Í gagnkynhneigðum samböndum lendi stærri hluti heimilisstarfa og barnauppeldis enn gjarnan á konum. Þegar annar aðilinn upplifir að hann beri meginábyrgð á heimilinu á meðan hinn leggi lítið af mörkum geti það skapað ójafnvægi sem bitnar á kynlífinu. Það er enda erfitt að finna fyrir löngun til maka sem maður er stöðugt pirraður út í.
Kynhvötin breytist með árunum
Kynlíf para tekur eðlilega breytingum eftir því sem árin líða. Streita í vinnu, barneignir, lyfjanotkun, verkir og ýmis tímabil lífsins geta haft áhrif á kynhvötina.
Grines segir að tímabundin minnkun á kynlífi þurfi alls ekki að þýða að sambandið sé í vanda. Pör geti upplifað minni kynferðislega löngun án þess að hlýja, ástúð og traust minnki.
Það skipti hins vegar máli hvernig makar komi fram hvor við annan á þessum tímabilum. Ef annar aðilinn sýnir litla umhyggju, tekur ekki þátt í sameiginlegri ábyrgð eða fjarlægist maka sinn tilfinningalega geti það haft áhrif á löngun til kynlífs og annarrar nándar.
Er hægt að endurvekja neistann?
Að sögn Grines er fyrsta skrefið að átta sig á því hvaða aðstæður þurfi að vera til staðar svo kynferðisleg löngun geti kviknað.
Hún hvetur pör til að ræða opinskátt um kynlífið og spyrja sig hvort þau séu að gefa sambandinu nægilegan tíma. Er kynlífið alltaf það síðasta á verkefnalistanum? Þurfa þau að skipuleggja stundir saman þar sem þau geta verið náin án þess að finna fyrir pressu um að stunda kynlíf? Slíkar samræður geti hjálpað pörum að átta sig á því hvað þau þurfi hvort frá öðru.
Grines leggur einnig áherslu á að kynferðisleg nánd þurfi ekki alltaf að fela í sér samfarir. Kossar, faðmlög, strokur og líkamleg snerting geti skipt miklu máli fyrir tengsl para.
Það þýði þó ekki að hægt sé að leysa djúpstæð vandamál í sambandinu með því einu að kúra meira. Ef gremja, vantraust eða ójafnvægi sé til staðar þurfi að takast á við þau mál, jafnvel með aðstoð sérfræðings.
Hjónabandið þarf ekki að drepa kynlífið
Grines segir að í upphafi sambands sé yfirleitt mikil eftirvænting, spenna og nýjungagirni. Fólk leggi sig fram um að verja tíma saman og rækta sambandið. Þegar árin líða geti þessi meðvitaða viðleitni hins vegar minnkað. Það þurfi þó alls ekki að vera óhjákvæmilegt að kynlífið fjari út.
Pör geta haft áhrif á þær aðstæður sem stuðla að kynferðislegri löngun með því að verja gæðatíma saman, sýna hvort öðru athygli, halda í leikgleðina og ræða vandamál áður en þau verða að langvarandi gremju.
Jafnræði í sambandinu skipti einnig miklu máli. Þegar báðir aðilar upplifa að þeir séu í sama liði og beri sameiginlega ábyrgð á heimilinu geti það skapað betri grundvöll fyrir nánd.
Ekkert eitt viðmið gildir fyrir alla
Grines varar að lokum við því að pör beri kynlíf sitt saman við einhverja ímyndaða staðla um hversu oft þau eigi að stunda kynlíf.
Það sem hentar einu pari þarf ekki að henta öðru. Sumir vilja stunda kynlíf oft í viku á meðan aðrir eru ánægðir með mun minni tíðni.
Mestu máli skipti að báðir aðilar séu sáttir við kynlífið og geti rætt þarfir sínar af hreinskilni.
Markmiðið eigi ekki að vera að ná ákveðnum fjölda skipta í viku eða mánuði heldur að skapa kynlíf sem veitir báðum ánægju og getur þróast með sambandinu eftir því sem lífið breytist.
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗